Vinstriflokkur hjó á hnút
Vinstriflokkur hjó á hnútHannes stjórna kunni.Nær fyrst koma Norðmenn útnorsku Biblíunni.
Heimildir og samhengi
Frá og með Valtýskunni, 1897, hafði Alþingi farið fram á að Íslendingur gegndi embætti Íslandsráðgjafa og sætti sig við að byggi í Danmörk.
Þegar ,,systemskiftet", þ.e., þingræði, varð í Danmörk 1901 með ríkisstjórn Venstre, þá gekk sú stjórn lengra, 1903, og bauð Íslendingum ráðgjafa búsettan í landinu sjálfu.
Dómsmála- og Íslandsráðgjafi í vinstristjórinni var P.A. Alberti og réði hann því, 1903, að Hannes Hafstein, en ekki Valtýr Guðmundsson, tók við ráðagjafaembættinu af honum 1. febrúar 1904.
Fjórum árum síðar, 8. september 1908, gekk justitsminister Alberti inn á lögreglustöðina í Kh. og gaf sig fram sem stærsti fjársvikari danskrar sögu. Var það um milljarður danskra króna sem hann hafði einkum haft af Den Sjællandske Bondestands Sparekasse.
Alberti fékk 8 ára fangelsisdóm, en látinn laus 1917 eftir 7 ára afplánun vegna góðrar hegðunar.Vefursvindlere.dk (opnast í nýjum flipa)
Þeir Alberti og Hannes misstu því báðir embætti sín um sama leyti.
Hannes féll í uppkastskosningunum 10. sept. 1908 og stóðust andstæðingar hans ekki þá freistingu að spyrða þá Alberti og Hannes saman í umræðunni.
1550 kom út biblía á dönsku, sem aldrei var tekin í notkun í hjálendunni Ísland, sem fékk Guðbrandsbiblíu 1584 og hafði haft Nýja-testamentið á íslensku frá 1540.
Öðru máli gegndi um Grænland, Færeyjar og Noreg, sem notuðu danskar biblíur til 20. aldar.
Norsk biblía kom út 1904, en danskri stjórn á Noregi, sem verið hafði frá 1380, lauk 1814, þegar við tók sænsk til 1905, en biblíu á móðurmáli sínu fengu Norðmenn 1904.
Sálmabók á norsku kom 1870 eftir átök um málfarið. Áður var sungið á dönsku í kirkjum Noregs.
Færeyska kirkjan tók í notkun sálmabók á færeysku 1961. Sálmabók á grænlensku kom út 1971.
Frá miðri 17. öld komust íslensk tunga og fornsögur næstum til þeirrar virðingar með Dönum og Svíum sem haft höfðu hjá norskum konungum á söguöld.
Kepptust Svíar og Danir um íslensk handrit. Urðu skæðaefni þá konungsgersemar, sjá t.d. 1683, og 1688. eru Íslendingasagnahandrit prentuð í Skálholti þegar ljóst var orðið bókmenntalegt gildi þeirra. Voru þá 154 ár frá því að Jón Arason stóð fyrst fyrir bókarprentun á Íslandi - þá á latínu.
Í Noregi féll allt að helmingur þjóðarinnar í svarta-dauða um miðja 14. öld. Þar lifði af 1 biskup og 40 prestar af 300. Veraldlega yfirstéttin þurrkaðist nær út. Tók það um tvær aldir að fólksfjöldi yrði samur enda lagðist drepsóttin helst á fólk á frjósemisaldri.
Þýskir kaupmenn, Hansa - náðu við þetta versluninni og 1380 lendir Noregur svo undir Danmörk með konungserfðum. M.a. vegna skorts á menntamönnum urðu þá kirkju- og veraldleg embætti í stærstu borgunum helst skipuð Dönum. Þótti þá fremd að tala dönsku á þeim svæðum, en síður norðar og í afskekktum byggðum. Auk landslagsins er þarna önnur skýring á fjölda málýskna í Noregi og á því hve lengi dönsk Biblía hélt þar velli.
Meðal heimilda: AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)