Í Hjaltadal á bak og burt

Í Hjaltadal á bak og burter bikupsstóllinn nyrðraí þeirri krús vex engin urtog ekki syngur Viðra

Glúmur Gylfason · 1798

Heimildir og samhengi

Næstsíðasti Hólabiskup var Árni Þórarinsson (1741 - 1787). Hann var prestur í Odda frá 1782 til þess er hann fór utan til vígslu 1783 og Hólabiskup til dd. 1787.
"Gáfu- og dugnaðarmaður mikill, en stórlyndur og eigi vinsæll, lengstum heilsutæpur." (Ísl. æviskrár).

Engar bækur komu út á Hólum í biskupstíð Árna Þórarinssonar. Stafaði það bæði af harðindum og bágbornu ástandi prentverksins, og einnig því að þá var komin samkeppni frá prentsmiðjunni í Hrappsey. (Wikipedia).

Síðasti Hólabiskup, Sigurður Stefánsson, (1744 - 1798) var biskup á Hólum frá 1789 til dauðadags, eða í 9 ár.Hann var hálfbróðir Ólafs Stefánssonar stiftamtmanns. Hann var góður kennari og ástsæll, enda góðviljaður maður. Hann var fremur heilsuveill og var því ekki atkvæðamikill biskup. (Wikipedia).
Enginn var skipaður Hólabiskup að Sigurði látnum, en Geir Vídalín varð biskup Íslands 1801.

Norðlendingum þótti sér misboðið þegar ráði Magnúsar Stephensen var fylgt og Hólastóll lagður niður, sjá1802.

Vísan hér til hliðar sækir efni til skáldanna Halldórs Laxness: ,,Hvað er þá auður, afl og hús, ef engin jurt vex í þinni krús".

Og séra Jóns Þorlákssonar á Bægisá, sem vandað sálmabókinni 1801ekki kveðjurnar en bauð tíkinni Viðru að syngja:

Ó, hve gleður Íslands þjóð
upplýsingin syðra
þeir hafa smíðað þessi ljóð
þú mátt syngja, Viðra.

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)