Kötlu enn í brók varð brátt
Kötlu enn í brók varð bráttbúinn Öfjörð vandisýslumanni fjörs varð fáttí flóði á Mýrdalssandi.
Heimildir og samhengi
Í Kötlugosi fórst sýslumaður, Þórarinn Öfjörð, f. 1793, við þriðja mann ásamt reiðhestum í vatnsflóði á Mýrdalssandi 14. sept. 1823.
Þórarinn hét nafni móðurafa síns Jónssonar sm. á Grund í Eyjafirði og ólst m.a. upp hjá móðurbróður sínum, Vigfúsi sm. síðast á Hlíðarenda enda orti Bjarni skáld erfiljóð um Þórarin og sendi konu hans, Rannveigu, sem líka var systir Bjarna sem kallaði sig Thórarensen.
Þórarinn tók upp nafnið Öfjörð á námsárunum í Höfn en þannig hljóðar Eyjafjörður á dönsku.
(Ísl. Æviskrár / Lögfræðingatal)
Í Lesbók Morgunblaðsins 29. sept. 1963 er grein eftir séra Gísla Brynjólfsson um Þórarin Öfjörð og ber heitð ,,Æ, hví dó hann Öfjörð svo ungur", sem tekið er úr kvæði Bjarna Thórarensen, ,,Kötlukvísl" sem dregur upp mynd af helförinni á Mýrdalssandi.