Þjóð að fjölgi þurfi tvo
Lag Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829
Þjóð að fjölgi þurfi tvoþað ku vera sannaðen fátæklingar skulu skoskemmta sér við annað.
Heimildir og samhengi
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa): ,,Alþingissamþykkt frá árinu 1720 (sjá 1721) ákvað að aðeins „bjargálnamenn“ mætti vígja í hjónaband og var öreigum títt meinað að giftast.
Ísland heyrði enn undir Danmörk á þeim tíma og var samþykktinni hnekkt árið 1768 með fyrirmælum frá Danmörk um að aðeins fólki með smitsjúkdóma skyldi meinað að ganga í hjónaband. Fyrirmælunum dönsku var ekki framfylgt nema að litlu leyti og íslensku skipaninni komið á á ný árið 1824, þegar kveðið var á um að þeir sem notið hefðu styrks úr fátækrasjóði gætu ekki gifst nema greiða styrkinn til baka. Prestar voru sektaðir ef þeir brutu þetta ákvæði og gáfu saman fátæklinga.
Þegar leið á öldina vildu íslenskir ráðamenn takmarka möguleikann til giftinga enn frekar og sendi Alþingi bænaskrá til konungs um að lögfesta þá skipan að „alþekkta óráðs- og óreglumenn og ónytjunga megi ekki gefa í hjónaband hér á landi nema með sérstöku leyfi viðeigandi sveitarstjórnar”.
Konungur samþykkti ekki lögin en eftir þessu viðmiði var þó að miklu leyti farið
...árið 1921 var loks samþykkt að fólk gæti gifst eins þó að það hefði þegið sveitarstyrk, og án þess að hafa greitt hann til baka". (1922).
Stefán Jónsson segir í Djúpdælu, bls. 176 frá tveimur dæmum þess 1839, að hreppstjóri banni og komi í veg fyrir að prestar gifti fátæk vinnuhjú sem þeir þó höfðu lýst með.
Guðrún Ása Grímsdóttir, Grunnvíkingabók I, 50: ,,...með þvílíkum lagasetningum stýrðu yfirvöld samlífi fólks ráðandi stéttum í hag; hjúskapur var lögboðin máttarstoð bændasamfélagsins”(1922).
Gísli Gunnarsson (2002): ,,...stór hluti þjóðarinnar bjó í ófrjálsu einlífi vinnumennskunnar eða að jafnaði 25% þjóðarinnar alla 19. öldina ...ekki voru tök á því að leyfa öðrum en húsbændum að eignast afkomendur, annars blasti hungurvofan við”.
Sjá og: Inga Huld Hákonardóttir, Fjarri hlýju hjónasængur, Mál og menning 1995, bls. 263–264.
Bjarni Harðarson: Króníka úr Biskupstungum, bls. 130: ,,Þórður var fæddur 1840 og það var alveg óvíst að ættarsamfélagið á Vatnsleysu hafi hugað honum þann frama að ganga í hjónaband. Í bændasamfélaginu viðgengst langt fram á 19. öld að aðeins fáein útvalin úr systkynahópi hljóti þá sælu. Hin eru dæmd til einlífis og ófrelsis vinnumennskunnar. Skortur á jarðnæði hamlar því að allir geti stofnað fjölskyldu en með því að takmarka giftingar með þessum hætti er líka komið í veg fyrir að lítilsháttar auður, sem nurlað hefur verið saman, dreifist um of. Það sem kemur í arfahlut ógiftra barnlausra fjölskyldumeðlima rennur í raun aftur til fjölskyldunnar við andlát, en ekki út fyrir hópinn ...,,Þórður gifti sig (1882) í ónáð frá sinni fjölskyldu og var gerður arflaus"" - hefur Bjarni eftir dótturdóttur Þórðar.