Með bjórglas einn við bar ég sit

Lag Bjórkjallarinn. - Yfirlit 16. aldar (1553)

Með bjórglas einn við bar ég sitog bergi daginn langannei, þetta er sko ekkert vitþví Skálholtsprestinn skyldi taka fangan.Ég frétti er las, að fæddi Gunna tvöog frekar eitt í viðbót.og fyrr en varir þau eru orðin sjösvo ekki er hér vanþörf á siðbót.

Glúmur Gylfason · 1600

Heimildir og samhengi

Fyrsti biskup í Skálholti eftir siðbót Lúthers var Gissur Einarsson (1512-1548).

Íslenskar æviskrár I, 466: ,,Eysteinn Þórðarson kirkjuprestur í Skálholti og er orðinn það 1539. Í utanför Gissurar Einarssonar til vígslu (1542-3) varð heitmær hans (Guðrún Gottskálksdóttir, systir Odds lm. þýðanda Nýjatestamenntisins) þunguð af völdum séra Eysteins (þríburar sem lifðu skammt). Hann varð síðar prestur á Álftamýri, þó ekki fyrr en eftir lát Gissurar biskups 1548, og hélt það prestakall til dauðadags, 1577".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa) 
Biskup, Gissur Einarsson syngur Pálmi Gestsson
Tæknimaður Jónas Björgvinsson, hljóðver.is

Úr predikun sr. Skúla Ólafssonar í Neskirkju 1. sd. eftir þrenningarhátíð 2024:
.. ... mælikvarðinn sem fólk hafði til hliðsjónar þegar páfar og kóngafólk gerðust of upptekin af sjálfum sér, söfnuðu auði og völdum, hlúðu ekki að þeim sem stóðu að jaðrinum. Þá reis kristið fólk upp og mótmælti.
Við eigum meira að segja nafn yfir það. Við köllum það siðbót. Fyrir fáeinum árum börðumst við fyrir hag hinsegin fólks innan kirkjunnar og það leiddi af sér róttæka stefnubreytingu. Allt var það grundvallað á ritningunni og hugsjónum Krists. Sennilega er það nýjasta dæmið um slíka siðbót innan kirkjunnar".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)