Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1600
1600
1600

16. öld - yfirlit A

Hljóðbrot0:00

Lag Óvinnanleg borg

116. öld - yfirlit A

Nú jörðin kúla orðin eren áður pönnukaka.Úr klaustri Marteinn munkur ferog má sér konu taka.Við kirkju kóngur sparþá klaustrin niður skaren ef í auga er flísog eins þá holdið rís,vill krúnan krókinn maka.

Glúmur Gylfason · 1600

Heimildir og samhengi

Með Portúgalanum Ferdinand Magellan (1480-1521) sigldu 237 menn í mars 1519 í vestur á 5 skipum frá Sevilla og náðu þrjú skip fyrir suðurodda Ameríku til Filipseyja í mars 1521. Þar féll Magellan í bardaga, en eitt 85 tonna skip lauk hnattsiglingunni 6. sept. 1522 og lifðu þá einungis eftir 18 sárþjáðir menn.
Magellan hafði áður náð Filipseyjaklasanum úr hinni áttinni svo að hann varð fyrstur til að fara hringinn kringum jörðina.

Upphaf lúthersku siðbreytingarinnar með þýskum er miðað við 1517 eða 1521. Hún komst á hér með Kristjáni III. árið 1541 í Skálholtsstifti og 1551 í Hólastifti. Sjá 1550.
Við siðbreytingu færði kóngur, Kristján III., þá refsidóma við siðferðisbrotum undir sýslumenn, alþingi og sig, þ.e., veraldlegt vald, sem frá 1275 / 1354 skv. Kristnirétti hinum nýja og enn fremur með samkomulagi Staða-Árna Þorlákssonar og Noregskonungs í Ögvaldsnesi í Noregi 1297, heyrðu undir kirkjuna. Hann kallaði samverkamann Lúthers, Jóhann Bugenhagen (1485-1548) til þeirra starfa að koma ásamt sér skipulagi á siðbreytta kirkju í Danaveldi.

Á 16. öld féllu þrír umboðsmenn konungs (fógetar) og liðsmenn þeirra óbættir í valinn fyrir Íslendingum: Lénharður, 1502, D.v.Minden, 1539 og Christian Schriver 1551. (Einar Laxness, Íslands saga I,149).

Það kom Kristjáni III. á óvart hve lítið fémætt reyndist á stólunum þegar lét greipar sópa, 1551, og sendi þá mann, til að leita betur. (Saga Íslands,VI, 90).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1600

  • Skriða á heiði Rafns er rann
  • Í Hvítá hjá Skálholti skrímsli sást
  • Með bjórglas einn við bar ég sit
← 1599Þá kom loksins að því að1600 →Skriða á heiði Rafns er rann