Hvað er nú orðið um okkar gen
Hvað er nú orðið um okkar genog íslensku nöfnin forn?Þeirra í síðu höfum hornsem heiti sín enda á -sen.
Heimildir og samhengi
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
,,Lögin 1925: Bann við ættarnöfnum
Stefna þeirra sem andvígir voru ættarnöfnum hlaut meirihluta þingsins árið 1925. Bjarni Jónsson frá Vogi lagði árið 1923 fram frumvarp til laga um mannanöfn með þann tilgang að útrýma ættarnöfnum. Um 200 ný ættarnöfn höfðu þá verið samþykkt, til viðbótar við eldri ættarnöfn, frá því fyrri lög tóku gildi, 1914. Frumvarpið var samþykkt í neðri deild þingsins en því var hafnað í efri deild. Í umræðum stakk Bjarni upp á að hver sá er skrifaði sig ættarnafni „skyldi greiða árlegan nafnbótarskatt – tíu krónur fyrir hvert atkvæði í nafninu.“ Telur Benný Sif Ísleifsdóttir hugmyndina um ættarnöfn sem skattstofn til marks um að litið hafi verið á ættarnöfn sem verðmæti og þar með sérréttindi.
Árið 1925 lagði Bjarni frumvarpið fram aftur með þeim breytingum að allir þeir sem þegar báru ættarnöfn gætu haldið þeim en bannað yrði að taka upp ný. Eiginkonur karla með ættarnöfn gætu tekið þau upp, en þau erfðust ekki til barna þeirra. Benný Sif Ísleifsdóttir segir ákvæðið hafa reynst haldlítið „því fólk fór á svig við reglurnar með því að gefa börnum ættarnöfn við nafngjöf sem annað nafn af tveimur eða þriðja nafn. … Ættarnöfnin lifðu því enn góðu lífi og þeim hélt áfram að fjölga, löglegum ættarnöfnum sem og þeim ólöglegu.“ (26) Sagt er að lögin frá 1925 hafi verið „dauður bókstafur því lítið sem ekkert var farið eftir þeim“. „Þau ættarnöfn sem upp voru tekin á árunum 1915–1925 ganga því í ættum með sama hætti og eldri ættarnöfn. Í öðru lagi hafa menn alla tíð frá gildistöku laga nr. 54/1925 tekið sér ný „ættarnöfn“, þrátt fyrir ákvæði laganna, og látið þau ganga til barna sinna og annarra niðja.“ Stjórnvöld höfðu lítil afskipti af þróun þeirra mála".