Halaveður, hækkað gengi
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Halaveður, hækkað gengiHéraðsvatnabrú.Kyn ef stendur Kveldúlfs lengiKorpúlfsstaðabú.
Heimildir og samhengi
Í Halaveðrinu 7. til 8. febrúar fórust tveir togarar á Halamiðum og 68 skipverjar týndu lífi, vélbátur fórst með sex mönnum og fimm urðu úti á landi.
Jón H. Þorbergsson, Ævidagar, bls. 236: ,,Veður þetta kom eins og byssuskot. Á bæ einum á Snæfelsnesi sunnanverðu sendi bóndi einn börn sín tvö, dreng og stúlku, fyrir hesta stutt frá bænum. Er þau voru nýlega farin skall veðrið á. Hljóp bóndinn þegar á eftir börnunum og fann þau strax. En hann komst ekki með þau fetið á móti veðrinu. Barðist hann um alla nóttina unz hann náði bæ, en þá voru bæði börnin dáin".
(Sjá bók Steinars J. Lúðvíkssonar: Halaveðrið mikla. Einnig Einars sögu Guðfinnssonar, bls. 224).
Í minningargrein bls. 38 í Morgunblaðinu 25. ágúst 1988 segir að ýmsir haldi því fram að Guðmundur Guðmundsson frá Nesi við Seltjörn, skipstjóri á togaranum Þórólfi, hafi fyrstur fundið Halamiðin - það gæti hafa verið um 1920.
Í bók Árna Óla, Aldaskil, bls. 180, segir Jón Lárusson, skútuskipstjóri á Bíldudal, f. 1878 í Rifgirðingum á Breiðafirði, frá fjögurra sólarhringa hrakningi árið 1900 ,,í óskaplegu sunnanroki" sem bar hann á skútu við fjórða mann langt norður í ballarhaf. Sjór eyðilagði matarbirgðir allar, en með því að binda nokkur færi saman náðu þeir 17 golþorskum á 100 faðma dýpi nyrst á því svæði sem 20 árum síðar var nefnt Hali.
Í ævisögu Sæmundar Sæmundssonar, sem Guðmundur Hagalín skráði, segir að hákarlaveiðarfæri hafi komið í vörpur togara á Halamiðum, sem bendi til þess að á 19. öld eða fyrr hafi hákarl verið sóttur á opnum skipum svo langt norður.
Þetta staðfestir sr. Kolbeinn Eyjólfsson á Eyri í Skutulsfirði sem lýsir hákarlaveiðum sóknarbarna sinna um 1840: ,,...róa stundum svo langt á haf út, að vatnar aðeins fyrir hæstu fjallatindum ...og liggja úti mörgum skammdegisnóttum í senn ef ekki byrjar til lands". (Tilvitnun í Jón Þ. Þór, Sjósókn og sjávarfang, bls. 175).
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Halldór Stefánsson: Refskák stjórnmálaflokkanna, bls. 151: ,,Árið 1924 var eindæma góðæri, einkum fyrir sjávarútveginn ...viðskiptahagur landsins gagnvart útlöndum var svo góður, að fjármálaráðherra Íhaldsflokksins, Jón (1859-1926) Magnússon”, hækkaði gengi krónu um 75% útgerðinni til mikils skaða og ,,gekk t.a.m. af vélbátaútgerð á Ísafirði dauðri” (Saga Íslands XI, 37) ,,og um leið Íslandsbanka sem lánað hafði til útgerðar” (Íslandssagan í máli og myndum bls. 319). Fjármálatíðindi Seðlabankans 1974 kenna gengishækkunina 1924 við Jón Þorláksson eins og venja hefur verið. Þriðji ráðherrann í stjórninni var Magnús Guðmundsson (1879-1937). Allir úr Íhaldsflokknum sem JÞ stofnaði 1924. Stjórnin studdist við Bjarna frá Vogi Jónsson, sem lést 1926 eins og Jón Magnússon og féll íhaldsstjórnin í kosningum 1927.
Þrátt fyrir breyttar aðstæður stóð þetta lögfasta gengi í 15 ár.
Hannes Jónsson, kaupmaður, Rvk. Endurminningar, bls. 142: ,,Jón Þorláksson ...hækkaði krónuna úr 47 aurunm í 83 aura. Það er mesta raunverulega kauphækkun sem verkamenn hafa nokkurn tíma fengið, en hún kom mörgum atvinnurekanda á kné og orsakaði atvinnuleysi síðar".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Lokið smíði brúar á vesturós Héraðsvatna, vígð formlega 1926. Lögferja þar frá 1740. Sögufrægur ferjumaður var Jón Ósmann Magnússon (1862-1914).
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Stofnandi útgerðarinnar Kveldúlfur, Thor Jensen (1863-1947), fékk Korpúlfsstaði 1922 af Einari Benediktssyni í skiptum fyrir Bakka í Ölfusi og keypti á næstu árum 6 aðliggjandi jarðir. Í júni 1925 eru frumteikningar hans sjálfs dagsettar. Síðast gekk Sigurður Guðmundsson arkitekt frá þeim, en byggingarframkvæmdum lauk 1931.
Úr rekstrinum dró í kjölfar mjólkursölulaganna 1934 og keypti Reykjavíkurborg búið 1942.
Saga Íslands XI, 57 nefnir að tap hafi verið á rekstri Korpúlfsstaða fyrir gildistöku laganna 1935, og ,,niðurstaða rannsóknar á vegum Háskóla Íslands var að búið hefði aldrei staðið undir sér, meðan Thor Jensen stóð fyrir því" segir í Mbl.-grein Björns S. Stefánssonar:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
sem tíundar að Ólafur Thors hafi stutt lagasetninguna 1934.
En Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar, II, 293: ,,Stjórnarráðstafanir urðu til þess að Thor hætti búskap". Sé niðurstaða HÍ rétt ætti að standa ,,...að Thor gat hætt búskap".
Jón Guðnason: Umbyltingin við Patreksfjörð 1870-1970, 52: ,,...festu margir, sem fengust við útgerð, kaup á jörðum, líklega hafa þeir talið jarðeignina öruggustu líftrygginguna ... ekki fátítt ...í Danmörku, að nýríkir kapítalistar keyptu eða reistu sér höfðingjasetur til að afla sér virðingarstöðu".
Aðrar heimildir og tilvísanir:
Kristmundur Bjarnason: Jón Ósmann ferjumaður, 1974; Theódór Friðriksson: Í verum II, bls. 465-467;
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson III, 116; Björn Th. Björnsson: Seld Norðurljós, Mál & menning, bls. 124;
Guðmundur Gíslason Hagalín: Virkir dagar, ævisaga Sæmundar Sæmundssonar.
Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, 150.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurdive-explorer.com (opnast í nýjum flipa)
FréttFréttablaðið (opnast í nýjum flipa)
Reykjavík 1926, þögul kvikmynd:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)