Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1944
1944
1944

Enn er farið með sem morð

Lag Allt fram streymir endalaust

EEnn er farið með sem morðmun og lengi vaniað best sé að hafa engin orðum hversu kvöddum Dani.

Sækja gerir enskan á,,okey, yes" við segjumeins og gerðist áður þáí Orkn- og Hjaltlandseyjum.

Glúmur Gylfason · 1944

Heimildir og samhengi

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Lögskilnaðarmenn tókust á við hraðskilnaðarmenn í lýðveldiskosningunni. Lögskilnaðarmenn voru einkum þeir sem dvalist eða menntast höfðu í Danmörk. Einn þeirra var Hannibal Valdimarsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans á Ísafirði. Hann fékk þessa kveðju frá ritstjóra Vestra, hraðskilnaðarmanninum Sigurði Bjarnasyni frá Vigur, síðar ritstjóra Morgunblaðsins:

,,Það er krafa allra óspilltra Ísfirðinga, að svikarinn, skólastjóri Gagnfræðaskólans, segi af sér skólastjórastarfi.
Bænum og þó fyrst og fremst unga fólkinu í bænum, sem gengur í þennan skóla er gerð margföld svívirðing með því að hlýta á námsbraut sinni forystu slíks grautarhauss og smámennis.
Um þessa kröfu verða Ísfirðingar að fylkja sér ..."

Kristján 1. Danakóngur vildi 1469 gifta Jakobi 3. Skotakóngi dóttur sína en skorti fé til heimanmundar. Veðsetti hann þá Skotakóngi Hjaltlands- og Orkneyjar, en án leyfis ríkisráðs Noregs - en eyjarnar erfðust með Noregi undir dönsku krúnuna um 1380. Heimamundurinn var aldrei greiddur og hafa eyjar þessar síðan tilheyrt Skotlandi og týndu norrænu tungu sinni.

Myndir

Einnig frá árinu 1944

  • Undan þýski herinn hörfar
  • Jónas frá formennsku felldur
  • Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum
  • Kommar fara kollhnís enn
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
← 1944Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum1944 →Kommar fara kollhnís enn