Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1944
1944
1944

Jónas frá formennsku felldur

Hljóðbrot0:00

Lag Einn herra ég best ætti

JJónas frá formennsku felldurí Framsókn þetta ármenn kusu Hermann heldurog Hrifla er Eysteini sármeð uppeldissyninum eldurþótt aldurinn sé hárog næstum kross á negldurnyrðra þeim reynist grár.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1944

Heimildir og samhengi

Sr. Sigurjón Einarsson, Undir hamrastáli, bls. 110: ,,Það er apríldagur 1944. Finnbogi (b. Hóli, Bakkadal, Arnarfirði) er í heimsókn hjá okkur.
Hann er nýkominn úr Reykjavík þar sem hann sat flokksþing Framsóknarflokksins. Þetta var sögulegt þing.
Jónas frá Hriflu var felldur frá formennsku í flokknum. Hermann og ,,uppeldissonurinn" Eysteinn, voru menn dagsins.
Okkur feðgum þótti þetta slæm tíðindi. Pabbi var Jónasarmaður, tryggur foringja sínum og hrifinn af skrifum hans og málflutningi.
Finnbogi var ekki sama sinnis. Hann var kominn til að rétta af misvísunina hjá mági sínum, en Sigríður, kona Finnboga, var systir pabba. Ég hlustaði grannt á það sem hann sagði.
Hann ræddi um formannskjörið og sagði að sá gamli (Jónas) hefði verið orðinn svo ráðríkur, að engu tauti hefði verið við hann komandi, ,,fyrir nú utan það, að nauðsynlegt er að styðja við bak þeirra ungu manna sem nú hafa verið kjörnir til forystu og mér líst nú bara svo andsvílli vel á", sagði hann og reis úr sæti sínu og gekk útskeifur um stofugólfið með höndurnar upp undir olnboga í buxnavösunum".
(Sögumaður séra Sigurjón Einarsson, (28.08. 1928 - 13.07.2021).

Jónas sat sem fastast Framsóknarþingmaður S-Þingeyinga í 5 ár eftir þetta, en samkomulagið við forystu flokksins batnaði ekki - sjá 1939.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Stiklur Ómars um Arnarfjörð vestanverðan: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Reykjavík 1944:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1944

  • Undan þýski herinn hörfar
  • Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum
  • Enn er farið með sem morð
  • Kommar fara kollhnís enn
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
  • Í bjargi er héngum á hvannarrót
← 1944Undan þýski herinn hörfar1944 →Vestu'r í Dölum er Denni að veiðum