Kóngur náðar ekki auma.
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Kóngur náðar ekki auma.Úti í MikladalGuðrún pokann sjálf fær saumasem í drekkja skal.
Heimildir og samhengi
Guðrún Valdadóttir, ráðskona aldraðs manns, Sigurðar ,,elli”, ól honum barn, en hafði fyrr á árum eignast barn með (stjúp)syni hans. (Íslands Árbók, Annálar V, 36).
Af annarri heimild, Hrafnagilsannál, IV, 684, má skilja, að Sigurður elli Jónsson hafi (áður?) verið kvæntur systur Guðrúnar Valdadóttur. Var hvort tveggja dauðasök skv. lagabókstaf til 1869, en kóngur (Struense) fór að náða í slíkum tilvikum 1771. (1770). Eftir þetta voru konur hálshöggnar fyrir brot á Stóradómi og urðu tvær,1763 og 1792. Guðrún Valdadóttir má hafa verið sú síðasta sem drekkt var. Íslendingabók segir 17. mars 1755.
Guðrún á að hafa við aftökuna, eða á leið til hennar, sungið 27. Passíusálm. Þar segir séra Hallgrímur Pétursson m.a.: ,,Ó, vei þeim sem með órétt lög / umgangast og þau tíðka mjög”.
Guðrúnu var drekkt í Mikladal, þeim sem er að vestanverðu í Patreksfirði og þar er minnismerki um hana. Ath., samnefndur dalur er norðanmegin fjarðar.
Af Sigurði ,,elli" (ella?) er það að segja að hann hafði á sínum tíma gengist við þunga Helgu Jónsdóttur frá Sellátrum til þess að mega kvænast henni , en það barn var Einar sá sem síðar gat barn við Guðrúnu Valdadóttur.
Sigurður var hálshöggvinn 1754 á sýslumannssetri Davíðs Scheving í Haga á Barðaströnd.
Játvarður Jökull Júlíusson rekur í ,,Umleikinn ölduföldum", bls. 13, sagnir þær sem herma að Sigurður ,,elli" hafi árangurslaust leitað eftir því við þann rétta föður fyrrnefnds Einars, að hann gengist við faðerninu og forðaði sér svo undan öxinni. Þessi maður er kynntur undir nafninu Gunnar Barðstrendingur, (Jónsson frá Auðshaugi á Hjarðarnesi - Íslendingabók).
Játvarður Jökull, bls. 13: ,,Það orð lá á, að nokkra hönk ætti Sigurður elli upp í bak á Gunnari. Hann hefði fyrrum gengist við því barni konu sinnar, sem Gunnar hefði með réttu átt.
Ekki varð Gunnar við bón Sigurðar ella og engum undanbrögðum auðnaðist honum að ná, eða koma vörnum við. Hann var tekinn af lífi í Haga á Barðaströnd (1754). ...En Sigurður elli gekk mót dauða sínum í ærið þungum hug, einkum til Gunnars Barðstrendings að talið var. ...Eftir dauða Sigurðar festist það mein við Gunnar, að hann fékk tíðum óþolandi verk í hálsinn. Við því dugðu engin úrræði nema helst að draga um hálsinn á honum öxina sem höfuð Sigurðar ella hafði verið afhöggvið með.
Þessi refsing dulinna máttarvalda festist í minni afkomenda Gunnars og varðveittist í munnmælum".
Það eru síðan afkomendur Gunnars Barðstrendings sem eru umfjöllunarefni 180 blaðsíðna nefndrar bóka Játvarðs Jökuls, en þeir urðu bæði margir og sumir þjóðþekktir. Álög þau sem Sigurður elli felldi á Gunnar Barðstrending voru ekki talin ná til afkomenda eins og vestfirskir draugar oft gerðu. Sjá t.d. 1611 og 1612. Meðal þeirra má nefna skáldin og systkinabörnin Matthías Jochumsson og Theódóru Guðmundsdóttur (Thoroddsen) sem og núverandi forsætisráðherra. Einnig fornleifafræðinginn sem næst er vitnað í, dr. Steinunni Kristjánsdóttur.
Á bls. 11 - 13 á slóðinni SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)
rekja Steinunn Kristjánsdóttir, Sigrún Hannesdóttir og Magnea Dís Birgisdóttir þessar frásagnir ítarlegar.