Hálfnuð varla harðindin
Hljóðbrot0:00
Lag Syngur lóa í laufgum mó – Bj.Þ. 869
Hálfnuð varla harðindinhart má ennþá púla,þúsund kostar kýrverðinað koma upp höll yfir Skúla.
Heimildir og samhengi
Kötlugos. Harðindi 1751-1757. Dóu um 9.700 manns af þeirra völdum til ársins 1759. Sjá nánar 1756.
Skúli flytur inn í Viðeyjarstofu 1755.
Kostaði húsið skv. Öldinni átjándu um 4.000 rd., þ.e. um 1000 kýrverð en aðrar heimildir nefna þó 666 kýrverð, en kýrverð er ekki alltaf hið sama í ríkisdölum.