Í hundslíki óhreinn andi þar
Í hundslíki óhreinn andi þaraf Ara Pálssyni sendurAndskotinn vitni um það bareftir því var hann brenndur.
Heimildir og samhengi
Eitt þeirra dómsmála sem vlm. Páll Vídalín og pófessor. Árni Magnússon tóku til endurskoðunar á árunum upp úr 1702 var galdramál þess Ara Pálssonar úr Barðastrandarsýslu, ,,sem brenndur var á alþingi 1681 eftir dómi um galdra-áburð og hafði hann þó ekki meðgengið að hann hefði nokkrum manni mein gert með kukli sínu". (Einar Arnórsson, Réttarsaga Alþingis, bls. 355).
Texti Páls og Árna: ,,...Það þriðja próf sem í þessum Hrafnseyrarprósess mun staðið hafa er svarin frásaga Borgars Sigurðssonar um óhreinan anda í hundlíki sem hann segir við sig talað hafi og sgðist vera sendur frá Ara Pálssyni og ætti sig eða eitthvað sitt að drepa.
Hér mætti þykja annan vottinn vanta til að fylla framburð Borgars uppá þennan óhreina anda svo eitt lögfullt vitni yrði á mót Ara eftir Kaupab. 2. cap.: ,,taka megu tveir við eins manns vitni og er sá frumvottur sem við var" (sbr. Jónsbók). En að því gjörðu þá væri þó andskotinn frumvottur ...og þar fyrir aldrei vitnisbær haldinn svo við nokkur dæmi til vitum fyrr eða síðar".
Arne Magnusson Embedsskrivelser 1916, bls. 385.
Eiríkur Jónsson, Rætur Íslandsklukkunnar, bls. 68, 69, 246.