Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1681
1681
1681

Ættin lengi skelegg, Skarðs,

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

ÆÆttin lengi skelegg, Skarðs,Skarð er hennar krúnagæta kann og afla arðs,þótt Eggert deyi núna.

Glúmur Gylfason · 1681

Heimildir og samhengi

+ Eggert ríki Björnsson, Skarði, Skarðsströnd, f. 1612. Sjá umfjöllun 1628.

Bergsveinn Birgisson, Leitin að svarta víkingnum, bls. 247: ,,Menn hafa haldið þvi fram að gamla aðalsmannaskipulagið eða lénsveldið á Skarðsströnd hafi ekki byrjað að flosna upp fyrr en komið var fram á 20. öld". BB vitnar þar í bók Steinólfs Lárussonar og Finnboga Hermannssonar frá 2003, bls. 106.

Föðurafi Eggerts ríka var Magnús prúði Jónsson. (1563,1569,1580, 1582, 1587, 1594, 1642).
Enginn karlleggur frá þeim Eggert og Valgerði Gísladóttur frá Bræðratungu, (sjá 1628), Hákonarsonar, Klofa, Árnasonar, Hlíðarenda, (sjá m.a. 1569, 1570, 1587) Gíslasonar, Hafgrímsstöðum, Hákonarsonar, Hafgrímsstöðum?, Hallssonar, Vindheimum á Þelamörk, Finnbogasonar gamla, Ási í Kelduhverfi, Jónssonar langs + Grundarbardaga 8. 7. 1362.

Helga yngri, dóttir þeirra hjóna, Eggerts og Valgerðar Gísladóttur var gefin Guðmundi ríka Þorleifssyni á Narfeyri, Kortssonar, en engin ætt þaðan.

Annarri dóttur þeirra, Guðrúnu eldri, Bæ, Rauðasandi, þótti ekki farast vel við landseta sína, sem voru flestir ef ekki allir bændurnir í hreppnum. Sjá 1724.

Guðrún yngri, gefin Guðmundi Sigurðssyni, lm. Jónssonar, bjuggu að Álftanesi á Mýrum, varð tengdamóðir am. Magnúsar Gíslasonar, föðurafa Magnúsar Stephensen (1762-1833), dómstjóra.

Arnfríður tók við búi á Skarði með manni sínum, Þorsteini, ,,sem engin völd eða lén vildi þiggja” (Ísl. æviskrár) - þurfti ekki! - Þórðarsyni, pr. í Hítardal, Jónssonar prófasts í Hítardal, Guðmundssonar.

1704 giftu Skarðshjónin, Arnfríður og Þorsteinn tvær dætur sínar sama daginn, 31. ágúst, mönnum sem með réttu voru nefndir ríkir og báðir fæddir þetta ár, 1681: Elínu fékk sm. Bjarni Pétursson, síðar b. Skarði, en Þrúði (að fyrri konu) fékk, sm. Brynjólfur Thorlacius, sonur Þórðar biskups, sjá 1628.
Um Brynjólf látinn skrifar lm. Sveinn Sölvason að hann hafi sagt af sér sýslumannsembætti ,,...þar hann hefur ei lengur hirt um að taka það ómak upp á sig, sjálfur hinn ríkasti maður á landi". (Annálar V, 49.)

Landnámsmaður á Skarði: Geirmundur heljarskinn, ,,ættgöfugastur landnámsmanna", segir Sturla Þórðarson, sjá þó hér við1916.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

Geti (vilji) núverandi Skarðverjar ekki rakið ætt sína til Geirmundar, þá óyggjandi til Guðrúnar Ósvífursdóttur.
Skarðverjar aftur frá tímabili þessarar vefsíðu:

Þorleifur lm. d. 1558, Pálsson og Sólveigar Björnsdóttur
Sólveig Björnsdóttir b. Skarði 1492 til dd. 1495
Þorleifur hstj. Skarði, d. 1486
Björn hstj. Skarði veginn af Englendingum 1467, Þorleifsson
B.Þ. var kvæntur eiganda Skarðs, Ólöfu ríku Loftsdóttur, d.1499/1500
Loftur ríki, hirðstjóri fluttist frá Skarði til Möðruvalla í Eyjafirði, d. 1432
Guttormur, veginn í Gljáskógum 1381
Ormur lm. d. um 1401
Snorri lm. Skarði, d. 1332
Narfi prestur Kolbeinsstað, d. 1284,
Skarðs-Snorri,pr. þar d. 1260,
Narfi d. 1202 pr. Skarði,
Snorri pr. & lm. Skarði d.1170
Húnbogi b. Skarði,
Þorgils Oddason (?) eða bróðir Ara fróða, þá þeir synir Þorgils b. Helgafelli, sem drukknaði á Breiðafirði 1074
Gellissonar goðorðsmanns Helgafelli, f. 1009, d. 1073 í Hróarskeldu; Þorkelssonar er druknaði á Hvammsfirði 1026; Eyjófssonar gráa (Gísla saga)
og k.h.: Gðrúnar Ósvífursdóttur frá Sælingsdalstungu, f. um 970. Þorkell 4. maður hennar.
(Íslendingabók).

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1681

  • Ásbjörn sýndi af sér rögg
  • Í hundslíki óhreinn andi þar
  • Loftur upp við lög á kant
← 1680Nýja öxi nota þeir1681 →Ásbjörn sýndi af sér rögg