Öxin skógum gefur grið
Lag Veðrið er hvorki vont né gott - sr. BjÞ. 888
Öxin skógum gefur griðgróa loks í ró og friðengin þörf á eldiviðeftir að fengum rafmagnið.
Heimildir og samhengi
Skógræktarstjóri, Þröstur Eysteinsson, Skógræktarritið 2021, bls. 99: ,,...Þéttbýli myndaðist um land allt á 19. öld og þar með markaðir fyrir eldivið hjá fólki sem gat borgað fyrir með peningum. Tað og mór þóttu verra eldsneyti en viður. Innflutt kol voru dýr og ekki alltaf fáanleg. Eldiviðarmarkaðurinn var stór og ekki fór að draga úr eldiviðarþörfinni fyrr en rafmagn kom til sögunnar að gagni og rafmagnseldavélar komu í stað þeirra sem kyntar voru með viði eða kolum. Rafmagn var ekki komið í flestöll hús á landinu fyrr en um og eftir 1950 og þá fyrst var stjórnlaust viðarhögg og hrísrif úr sögunni".
Ljósafoss í Sogi virkjaður 1937.