Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1937
1937
1937

Kjör Thors Jensen kröpp og bág:

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í Draumahöll

KKjör Thors Jensen kröpp og bág:kuldi, sultur, þorstiuns fé tók græða á fingri og táog frami við honum brostiþá gjafir og styrk kunnu fátækir fá- fannst ei með honum rosti -og Fríkirkjuveg númer 11 áennþá að minnsta kosti.

Strákum hans það fréttum fráí fjárhirslunni klingibankana upptelja alla máog Eimskip með útflutningiÍhaldið setja þeir ekki hjáÓlafur röskur á þingigegnum fingur sér Guð mun sjáþótt gjaldeyri undan stingi.

Glúmur Gylfason · 1937

Heimildir og samhengi

Thor Jensen (1863-1947) kom til landsins 14 ára einstæðingur og lifði þá hann og þjóðin brátt, 1881-7, eitt mesta harðindaskeið í sögu landsins.
Úrræði þurfamanna á fyrri hluta 20. aldar voru að leita til Thors eftir fjárhagsaðstoð og í spönsku veikinni, frostaveturinn 1918, kom hann upp eldaskála:
Guðjón Friðriksson, Bærinn vaknar II, 14:
,,Þarna var úthlutað máltíðum til 450 barna og 40 til 50 fullorðinna í nær tvo mánuði ... haustið 1915 lét hann útbýta matvöru og öðrum nauðsynjum til fjölda fátækra heimila og nam andvirði þessa tugum þúsunda króna og jafnframt gaf hann 15 þúsund krónur sem tveir fulltrúar Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og prestar bæjarins skyldu úthluta".

Þegar Kveldúlfur, sem synir hans áttu þá, 1937, stóð frammi fyrir gjaldþroti, afhentu foreldrarnir, Thor og Þorbjörg Kristjánsdóttir, þeim veð í öllum eignum sínum, þ.m.t. Fríkirkjuvegi 11, sem þó var ekki gengið að enda varla nokkur kaupandi þá að þvílíkri eign, sbr. 1940.

Guðmundur Magnússon, Íslensku ættarveldin, bls. 183, getur þess að bankastjórar allra bankanna, forstjóri Eimskipa, Útflutningsráðs, SÍF, og forystumenn Sjálfstæðisflokksins auk Ólafs voru allir í tengdum við Thor.
Ströng gjaldeyrishöft voru í gildi, en um það hvernig þau voru virt má lesa á bls. 221 í fyrrnefndri bók og kemur m.a. Ítalía þar við sögu, en þangað var fluttur fiskur og fyrirtæki stofnað. (1915, 1925, 1927, 1947).
Um sama efni: bls. 245, 253-254, 265 og 350 í Thorsurunum eftir sama höfund.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Dæmi um ,,stjórnmálaskrif" 1937, Þjóðviljinn 21. janúar: ,,Allir núlifandi Íslendingar kannast við dönsku Jensenættina sem undanfarna áratugi hefur látið greipar sópa um íslenskar auðlindir. Þeir ...breiða út þá kenningu, að þeir væru velgerðarmenn og vinnugjafar verkalýðsins íslenska. ...Í reyndinni eru þeir arftakar dönsku einokunarkaupmannanna, samlanda sinna".

Hafði formaður Sjáfstæðisflokksins þá svigrúm til að verða við ósk menntamanna um að slíta ekki konungssambandi við Dani fyrr en að stríði loknu?

Fordómar:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1937

  • Kveldúlfs- og dósentsm(M)ál & menning
  • Öxin skógum gefur grið
← 1937Kveldúlfs- og dósentsm(M)ál & menning1937 →Öxin skógum gefur grið