Hvorugur kunni hinum neitt
Hljóðbrot0:00
Lag Afi minn fór á honum Rauð
Hvorugur kunni hinum neittað hrósa í smáu, - stórugekk þá báða yfir eitt:erindisleysu fóru.
Heimildir og samhengi
Íslands árbók VI., bls. 7: ,,Reistu utan prófastar 2, nefnilega síra Björn Magnússon ...er síðar fékk Grenjaðarstað og síra Halldór Brynjólfsson frá Staðarstað, báðir upp á sama erindi, sem var að biðja um Hólastól, en með því að hvorugur recommenderaði annars forþénustu og báðir létu svo yfir að mikilla ábóta mundi vant vera í lærdómi og siðum í stiftinu, var hvörugur þeirra til biskups tekinn að því sinni, heldur komu báðir út aftur erindislaust".
Steinn Hólabiskup Jónsson hafði látist 1739.
Var þá Ludvig Harboe sendur með biskupsvöld til Íslands 1741 ásamt Jóni Thorchilius - sjá þar.