Hollenskir - er gerði garð -
Lag Syngur lóa' í laufgum mó - Bj.Þ. 869
Hollenskir - er gerði garð -gráum lentu í vandaen fjaran Skúla fengsæl varðer fleyin tóku að stranda.
Heimildir og samhengi
Tvær hollenskar duggur strönduðu í Skagafirði með skömmu millibili.
Gísli Konráðsson kallar þá fyrri varningsduggu og hafi strandað i norðanveðri úti fyrir Mallandi á Skaga í júlí 1740, hin síðari á Borgarsandi 16. apríl 1741.
Gísli segir sagnir um að Skúli Magnússon hafi haft mest gagn af ströndum þessum.
Kóngur verðlaunaði Skúla með 200 rd. fyrir framgönguna við ströndin, en Skagfirðingar litu öðruvísi á þau mál skv. Sögu frá Skagfirðingum I, bls. 68n.
Þarna sést aftur velþóknun sú sem Skúli naut æ síðan hjá kóngi og stjórnvöldum.
Í kjölfarið kom Skúli sér upp timbruðu húsi á Stóru-Ökrum sem virt var á 500 rd. 1743. (1737).
Stefán Jónsson, Höskuldsstöðum, Ritsafn I, 49: ,,Sagt var að margt hefði Skúli flutt heim til Akra - annað en dugguviðinn - af hollenskum varningi og eigi staðið skil á". Sama heimild segir Skúla keypt hafa Akra með 8 hjáleigum og nærliggjandi býlum af barnabörnum Sigríðar stórráðu og Jóns Eggertssonar handritasafnara (1683, 1694).