Veitingaskáli, vegur, brú
Lag Veik er mundin, sr. Bjarni Þorsteinsson, Þjóðlög, 915
Veitingaskáli, vegur, brúog verslun hjásvo Landsbankinn opnar útibúvið Ölfusá.
Heimildir og samhengi
1891kemur brú á Ölfusá þar sem nú er bærinn Selfoss.
Greiðasala var í Tryggvaskála við syðri brúarsporðinn frá 1901.
1. janúar 1947 varð Selfoss sérstakt hreppsfélag. Nafnið dregið af bóndabýli vestan við núverandi Selfosskirkju.
Guðmundur Kristinsson, Saga Selfoss l, bls. 117: ,,Í ársbyrjun 1906 var beréfhirðing stofnuð á Selfossi undir nafninu ,,við Ölfusárbrú", sem 1939 var var breytt í ,,Póstafgreiðsla Selfoss"."
Þéttbýli þetta var þó enn um sinn almennt kallað ,,Hjá / við Ölfusá" og til Póshússins á Selfossi bárust þannig merktar sendingar a.m.k. á fram á 7. áratug 20. aldar.
Það var Mjólkurbú Flóamanna sem 1929 tók að kenna sig við Selfoss segir Jón Gíslason: ,,Úr farvegi aldanna I", bls. 201. Með Ölfusárbrú 1891 hafi öll sú starfsemi sem þar reis verið kennd við brúna: ,,Við Ölfusárbrú", en tekið að breytast með Alþingishátíðinni 1930. Þangað fluttu bílar, rækilega merktir MBF, Selfossi, mjólkurvörur Flóabúsins sem báru líka nafn Selfoss.
1907 byggir Kristján Ólafsson, smiður, kvæntur Kristjönu úr Norður-bænum á Selfossi, húsið Sigtún, rétt austan við Ölfusárbrú, og verslar þar til 1914. Sigtún kaupir 1917 Daníel Daníelsson (1866-1937), tengdafaðir Egils Thorarensen (1897-1961), sem verslaði uns hann varð fyrsti kaupfélagsstjóri Kaupfélags Árnesinga 1930.
Um Egil látinn, 1961, ritaði Guðmundur Daníelsson, Þjóð í önn, 94: ,,... raddir hljóðnuðu og þögn sló á allan lýð, eins og þegar skip ferst í hafi og engin mannbjörg. ... Egill tilheyrir nú þeirri sögu sem hann sjálfur hefur verið að yrkja undanfarna áratugi, ekki í orðum heldur í verki, undanfarna áratugi, ekki á pappírsblað heldur í ásjónu landsins: sögu mikilla mannvirkja og framkvæmda, sem ... gerbreytt hafa til batnaðar högum og efnahag almennings í héraðinu ... áhrifin speglast í fasi og svip almennings, sem varpað hefur af sér tötrum fátækarinnar og klætt sig mennilega svo sem hæfir, kastað af herðum sér þrældómsokinu og rétt úr baki. ... ástæðan fyrir fundarheill hans var ... að hann hafði þann yfirburða persónuleika sem engin járn bitu ... gagnrýnisnart sem hann varð stundum fyrir ... hrökk af honum bitlaust ... enda flutningsmenn þess undir niðri fulli aðdáunar á manninum".
Landsbankinn opnaði útibú í Tryggvaskála 1918, en flutti 1919 í norskt hús sem kom frá Búðardal og stendur enn við Austurveg 21. Þar er myndin tekin sem á sjást, talið frá vinstri: Þorvarður Sölvason, kaupmaður í Vassabúð handan Austurvegar, vestan við núverandi Bókakaffi, þar er nú matsölustaður, þá Kristinn Vigfússon, húsameistari, Jón Pálsson, dýralæknir og Björn Sigurbjarnarson, bankagjaldkeri.
Tveir þeir síðasttöldu voru í fyrstu hreppsnefnd Selfoss og Björn oddviti.
Í norska húsinu var bankinn til 1953 þegar hann fluttist beint yfir Austurveginn í hús, sem Kristinn Vigfússon byggði, en það hefur bankinn nú selt og vélar annast gjaldkerastörf Bjarnar Sigurbjarnarsonar.
Vefurdfs.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurlandsbankinn.is (opnast í nýjum flipa)
FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)