„Alþýðu pínir danskur djöfull"
Lag Stína og brúðan, eftir Guðjón Bjarnason
A„lþýðu pínir danskur djöfull"dag hvern fær oss rúiðí spönsku veiki er gjörðist gjöfullgátum á hann snúið.
Heimildir og samhengi
Spánska veikin:
Jón Birgir Pétursson, Meyvant á Eiði, bls. 34: „var ég nýlega farinn að vinna hjá DDPA ...Det Danske Petroliums Aktieselskab, ...síðar Olíufélagið hf. ...Íslendingar voru ekki lengi að smíða sína útgáfu af þessari skammstöfun, - Danskur djöfullinn pínir alþýðuna.
Bls. 42: Hjálparstöðin (í Slökkvistöðinni við Tjarnargötu) gerði mikið gagn.
Barnaskólinn var gerður að sjúkrahúsi og barnaheimili. ...Í sumum tilfellum voru báðir foreldrarnir látnir frá börnum sínum.
Húsbóndi minn, olíukóngurinn H. Debell (forstjóri DDPA), bað mig að útvega menn til að fara um bæinn og kveikja upp í eldstæðum hjá þeim sem höfðu ekki getu til þess sjálfir.
Þegar flestar búðir voru lokaðar kom fyrirskipum frá Debell um að gefa olíu frá olíuportinu fyrir sunnan hús KFUM.
Því varð að hætta vegna misnotkunar".
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Helgi Skúli Kjartansson segir í Ágripi af sögu Alþýðuflokksins, bls. 6 til 7, að eftir vinnutímadeilu við hafnargerðina í Reykjavík ~1914 hafi verið farið að tala um að þjóðfélagsþróunin leiði til vaxandi misskiptingar auðs og valda, stjórnmálaflokkarnir allir þjónar ráðandi stéttar og slái ryki í augu almennings með marklausum þrætum um sambandið við Dani. Sjá og 1914.