Undir tönn fæst ekki margt
Lag Stafrófsvísa
Undir tönn fæst ekki margtenda hafið glært og hartútlitið því æði svartengra skipa nyrða vart.
Heimildir og samhengi
Vegna samfelldra harðinda frá 1751 voru nú þetta ár samskot tekin við kirkjur í öllu danska ríkinu, þ.e., frá Norður-Noregi til Suður-Jótlands.
Keyptar og sendar af stað 2000 tunnur korns, en vegna sumarhafíss komust skip ekki til Norðurlands en hestar ekki til reiðu - ýmist vannærðir eða étnir.
Mjölið komst því bókstaflega hvorki lönd né strönd.
Gísli Konráðsson (1787-1877): Saga Skagstrendinga og Skagamanna, 1941, bls. 38 og 39: „Veturinn næsta eftir Hreggvið 1755 gekk sótt. Önduðust úr henni margir menn. Var og veturinn 1756 allharður. Kom hafís með einmánuði, og aldrei létti hörkum og kaföldum frá 10. mars til 14. maí og ekki varð fisk vart á Skaga fyrr en í 16 viku skumars, en ísinn lá til hinnar 19. Þetta haust lagði Höfðaskip út og spurðist aldrei til þess síðan. Var á því kaupmaður er Hans Muhle Liua hét, miðaldra maður og góður drengur (Hörmangari!). Hofsósskip kom eigi heldur til skila. Næsti vetur var og harður og rak ís á sumarmálum ...harðindunum létti 1758".
Heimildir greinir á um fjölda þeirra sem féllu í harðindunum 1751 til 1758. Nefndar eru tölurnar frá 6000 til 9.700 og fyrir tölunni 12000 ber Gísli séra Magnús Pétursson sem þá var prestur á Höskuldsstöðum á Skagaströnd og ritaði annál áranna 1753 til 1776.
Sjá víðar vísur og umfjöllun um harðindaár þessi við1755og 1756.
Þorvaldur Thoroddsen, Árferði á Íslandi, 350 ,,En það eru sorgleg sannindi, að allur þorri almennings virðist, þrátt fyrir margra alda typtanir, aldrei hafa getað lært fyrirhyggju og forsjálni, menn láta sér sjaldan dæmi forfeðranna að varnaði verða".
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)