Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1757
1757
1757

Í Skálholtspiltum þá gólu garnir

Hljóðbrot0:00

Lag Þú komst í hlaðið

ÍÍ Skálholtspiltum þá gólu garnirei gat Jón Þorkelsson setið hjáþær álitlegustu væru varnirað vitja kóngs og í borðið slá.

Er gistu að Hólum þeir Harboe báðirþá hræddist tóran úr prestunumer sumir alls- varla voru gáðirog væntu hremminga' af gestunum,

sem áttu trassaskapinn skakka- því Skrattinn eflist við spil og dans -með fylgi Steina á Staðarbakkaer stóðst öll vélabrögð Andskotans.

Þar stendur Þorsteinn all drunga-, drunga-já, drungalega að austrinu,skráir í ,,Fælu” að ,,bunga-bunga”Bjarni þar fremji í klaustrinu.

Glúmur Gylfason · 1757

Heimildir og samhengi

1. vísa: tvær skýringar við árið 1734 og aðrar tvær 1736;
2. og 3. vísa: skýrast við árin 1742 , 1744 og 1747.
4. vísa, umfjöllun:

1757 er ,,manndauðaárið” eftir harðindi frá 1753.
Sr. Þorsteinn Pétursson prófastur Staðarbakka, Miðfirði, semur þá Leikafælu, rit sem fordæmir þrettándagleðskap Bjarna Halldórssonar, klausturhaldara á Þingeyrum. Nafnið Leikafæla vísar til Fjandafælu Jóns lærða frá 1612og má þá ljóst vera hvern séra Þorsteinn telur sig fást við auk klausturhaldarans, Bjarna. Sá ónefndi andstæðingur ber sama (gælu)nafn og AC Milan: il diavolo (djöfullinn), en það félag var í eigu Silvio(s) Berlusconi 1986 til 2017.
,,Bunga-bunga" nefndi afrísk stúlka - við réttaryfirheyrslu - svallveislur Silvios Berlusconi fv. forsætisráðherra Ítalíu. Vegna óleyfilegrar umgengni við hana aldurs vegna var SB, þá 77 ára, dæmdur til samfélagsþjónustu sem fólst í því að heimsækja alzheimersjúklinga á elliheimili einu sinni í viku í um eitt ár. Á fundi í flokki sínum, Forza Italia, segist hann á slóðinni MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa), m.a. hafa þjónað þeim til borðs, sett smekk á suma og matað aðra og verið glatt á Hjalla.
Hér má sjá Silvio Berlusconi koma fyrsta daginn til elliheimilisins:Vefurilfattoquotidiano.it (opnast í nýjum flipa)
Skýringar:
,,vélabrögð Andskotans", sbr. Páll postuli: Efesusbréfið 6, 11;
austrinu: þ.e., það að ausa með austri, þ.e. austurtrogi. Líking: prófastur eys skip sitt, kirkjuna, sem liggur undir ágjöfum Bjarna og óvinarins.
Þingeyra-bunga er líka örnefni við Þingeyrakirkju.

Frá Innréttingum Skúla Magnússonar var til Bjarna sm. og klh. á Þingeyrum sendur jóskur bóndi, Peder að nafni, þeirra erinda að kenna ræktunaraðferðir. Hans var hugmyndin að efna til gleðskapar um þrettándann að jóskum sið sem prófastur, Þorsteinn Pétursson á Staðarbakka, kallar ósiðlega hegðun: ,,Helstu verslegu menn í héraðinu, jafnvel kvenfólk, hafi dansað eftir pípu Peders frá morgni til kvölds", segir Þorsteinn í ævisögu sinni, bls. 225.
Forboð við dansi sem hér er getið 1736 og 1746 mun helst hafa verið hlýtt á Íslandi, a.m.k. alls ekki í Færeyjum.

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
,,Eftir frásögn Þorsteins prófasts Péturssonar á Staðarbakka að dæma, virðist Bjarni hafa verið gleðimaður. Þorsteinn segir hann hafa haldið jólagleðir á Þingeyrum þrjú ár í röð: 1755, 1756, 1757. Ekki finnst Þorsteini þess háttar veisluhöld guðleg þar sem um þessar mundir var harðæri á Norðurlandi með mannfelli. Sé mark tekið á frásögn Þorsteins prófasts – sem Ólafur Davíðsson og Jón Árnason telja ekki alls kostar áreiðanlega enda hluta af áróðursriti gegn vikivökum – gekk upp hálf tunna af brennivíni í einni gleðinni, sem stóð í heila viku. Jafnframt telja Ólafur og Jón að þetta hafi verið síðustu vikivakar sem haldnir voru á Norðurlöndum.
Indriði Einarsson (1851-1939) leikritaskáld, en amma hans var systir Reynistaðbræðra, segir brennivínið sem drukkið var á vikivakanum 1757 ekki hafa numið hálftunnu heldur einni og hálfri tunnu. (Mælieiningin tunna nam um það bil hundrað lítrum.) En að nítján óskilgetin börn hafi komið undir á síðustu gleðinni skal vera flökkusaga eins og sú, að sami fjöldi, 19, hafi komið undir á Jörvagleði áður en hún var síðast bönnuð, 1708.

Heimildir: Annálar IV, Djáknaannálar, Wikivand.
Ketilsstaðaanáll:
,,Biskup Harboe skipaði síra Þorsteini á Staðarbakka (1710-1785) að examinera um vorið (1745) skólann á Hólum og síra Árna Davíðsson á Hofi (á Skaga, sem Harboe hafði skipað að rifja upp fræði sín). Prófastur, síra Ormur, lét hann og visitera sýsluna í sínu umboði”.
Um þetta og nákvæmni og píetisma séra Þorsteins má og lesa í sjálfsævisögu hans, útg. Hlaðbúð 1947. Sjá og 1617 og 1734.

Sigurður G. Magnússon fjallar um viðhorf í sveitum öld síðar í Ísl. þjóðfélagsþróun 1880 - 1990 á bls. 316: ,,...var vinnan allt í lífi fólks ... skemmtanir þekktust ekki. Og í rauninni gerði fólk engar kröfur í þá átt".

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1757

  • Þá kónglegir náttúruskoðarar skyldu
← 1756Undir tönn fæst ekki margt1757 →Þá kónglegir náttúruskoðarar skyldu