Fordæðu síðast fyrir brennt
Fordæðu síðast fyrir brennten forneskju vestra iðjaí Selárdalssporin seint mun fenntséra Páls og niðja.
Heimildir og samhengi
Síðast brennt fyrir galdra.
Gils Guðmundsson, Frá ystu nesjum, I, 138:
Holtsprestur, Önundarfirði, sr. Sigurður Jónsson (Arasonar í Vatnsfirði (1636) og k.h. Hólmfríðar Sigurðardóttur (1617) Oddssonar biskups), ritar í bréfi til Skálholtsbiskups: ,,...mega að sér gæta einkum þessir Vestfirðir, hvar galdrar og djöflalærdómur með sínum eitruðum ávexti heyrist og tíðkast ár eftir ár, guði til styggðar, en hans börnum og þjónum til kvala, morðs og meiðsla, þeim sem fyrir því Satans hælbiti verða, hvað viðurstyggilegt er og hryggilegt um að hugsa. Guð náði og betri svoddan freyðandi svívirðing".
Kona sr. Sigurðar, Helga Pálsdóttir Björnssonar prests í Selárdal ,,var stórveikluð eftir galdraósköpin sem yfir gengu á uppvaxtarárum hennar. ...Þá sótti og sjúkleiki á börn þeirra hjóna og dóu tvö þeirra". Sigurður prestur ,,kærði mann þann er Sveinn hét Árnason og heima átti í ,,Ísafjarðarsýslu fyrir galdra. Var hann brenndur á Arngerðareyri haustið 1683".
Sjá: 1621, 1625, 1685, 1698, 1699, 1706.