Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1684
1684
1684

Verðlagi í sjötugt fimm ár fátt

Hljóðbrot0:00

Lag Hann í minni hafði lög - Bj.Þ. 898

Lag Tíu litlir negrastrákar

Lag Jólasveinar 1 og 8 (Oh, my darling)

VVerðlagi í sjötugt fimm ár fáttfinnst þó mörgum vera of háttá ,,hlutavetrinum mikla” kátt.Um Hólabiskup lítil sátt.

Eftirfarandi sungið við 1678:

Sýslumaður og soldát parsér neitt gáfu um andannen báðir urðu biskuparog börðust svo við Fjandann.

Postillur og predikanirprestum þurftu geraþví misjafnlega munu vanirog margir slakir vera.

Of seint mun nú úr því skera- annar tuggði, hinn drakk vín -hvort kunni að sama brunni beraBauka-Jón og Vídalín.

Glúmur Gylfason · 1684

Heimildir og samhengi

Óbreyttir sýslumenn, Magnús Jónsson - faðir prófessors Árna, og tveir aðrir - voru sendir utan til kóngs að freista þess að koma á verðstöðvun, nú, þegar setja átti nýja kaupsetningu.
Þetta hafði áður reynt sm. Jón Magnússon (prúða) með nokkrum árangri 1619enda bar hann riddaratitil - síðasti íslenski aðalsmaðurinn.
En nú hafði litla ísöld leitt af sér hækkað verð á korni og varð engu um þokað.

Gísli biskup Oddsson hafði beitt sér í kaupsetningarmálum 1632 og hm. Bjelke 1657-8, þannig að litlar verðhækkanir höfðu verið allt til þessa síðan 1619 þótt verðlag hefði hækkað erlendis, en kóngur í tilvikum lækkað leyfisgjald kaupmanna, en þeir stundum farið flatt. H. Bjelke lést1683.

Lúðvík Kristjánsson, Vestræna, 196: ,,Í kaupsetningunni 1684 fékkst ekki skrásett verð á nautgripum og var það síðan alfarið háð geðþótta kaupmanna”.

Vallaannáll, I, 397: ,,Frábærir hlutir vestra, syðra og eystra. Róið nálega allan þorrann fyrir norðan land".
Lúðvík Kristjánsson, Vestlenda, 164: ,,1670 til 1685 fiskaðist mjög vel en þó langbest 1684. Á Suðurlandi var þessi vetur kallaður hlutaveturinn mikli". Sbr. eftirfarandi myndband:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

+ Gísli biskup Þorláksson, f. 1631. Bauka-Jón vitjar Hóla sem eftirmaður, en mætir andbyr meðal presta.

Mælifellsannáll: ,,Biskup Jón Vigfússon í litlu afhald nyrðra”.

Tengdafeðgarnir, biskuparnir Jón Vigfússon og Jón Vídalín stefndu ungir á veraldlegan frama. Annar sem sýslumaður, en var vikið, hinn í herþjónustu, en var keyptur laus þaðan. Báðir sömdu postillur. Um hvort þær eigi eitthvað sameiginlegt, sjá umfjöllun Jóns Þ. Þór við 1678.

Myndir

Einnig frá árinu 1684

  • Lágu tveir á víðavangi
← 1683Fordæðu síðast fyrir brennt1684 →Lágu tveir á víðavangi