Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1929
1929
1929

Nú fá bændur meiri mjólk

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

NNú fá bændur meiri mjólken megi sjálfir torgaog vestan Heiðar fúst er fólkfyrir hana að borgahjá kúnum úti' um allt á beitengum hringir bjöllumþótt mjólkurbílar bruni' um sveitog brúsar standi' á pöllum.

Frjálsar stundir fáar áttifrækinn mjólkurbílstjórisnjó og leðju moka máttimarga nótt í óveðri.

Glúmur Gylfason · 1929

Heimildir og samhengi

Mjólkurbú Flóamanna, Selfossi, MBF, tók á móti fyrstu mjólkinni 5. desember 1929.
Áveitur á Skeiðum og í Flóa (1927) juku grasvöxt svo nóg varð mjólk til að selja til Reykjavíkur og nágrennis.
,,Fyrsti mjólkurbústjórinn var danskur, Carl Jörgensen. Hann rak búið við miklar frumbýlingsaðstæður. Enginn Íslendingur kunni til verka, mjólkin kom á reiðhestum til búsins, á hestvögnum og á tveimur bílum sem búið átti." (Mbl. 8. des. 1989).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Kaupfélag Árnesinga stofnað 1930, byrjaði verslunarstörf 1. janúar 1931. Kaupfélagsstjóri Egill Thorarensen.
Egill átti eina kú* og þar með gjaldgengur í MBF. Var hann skjótt kosinn í stjórn sem formaður og samræmdi þá akstur bílaflota KÁ og MBF, þ.e., meira en 30 bíla, en akstrinum stjórnaði fyrstu 20 árin Helgi Ágústsson frá Birtingaholti.
Vissu bílstjórar sjaldnast að morgni fyrir hvort fyrirtækið aka skyldi - kemur fram hjá Bjarna Ólafssyni í Ysjum, bls. 231.
Brúsapallar komu að ekki til sögu fyrstu árin þegar mjólkin var flutt með hestafli eftir slóðum og troðningum.
Allir starfsmenn við mjólkurvinnsluna voru danskir fram yfir stríð, en þá tóku Íslendingar að læra mjólkurfræði í Noregi og Danmörk.

* vísun í BA ritgerð Lýðs Pálssonar, sagnfræðings.

Indriði G. Þorsteinsson, Fimmtán gírar áfram, bls. 18:
„...bílstjórarnir urðu hálfgerðar þjóðhetjur. Þeir gengu með svartar gljáskyggnishúfur með gylltum borða og hölluðu þeim glannalega út í hægra vangann, svona til að stúlkurnar vissu að þarna væri maður á ferð. En þótt sjálfsöryggið væri mikið á ytra borðinu mátti segja að þeir ættu hin verstu trúnaðarmál við bíla sína.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Á þessum tíma þekktust ekki nema teinabremsur....kæmu þessar bremsur í vatn varð að standa á þeim langan tíma áður en þær þornuðu. ...með gírunum var hægt að láta vélina hamla á móti ferð niður brekkur ...þurftu menn að vera snillingar í svo nefndri tvíkúplingu".

Ysjur, Gísli Högnason á Læk, bls. 16: „...veðurbarðir svefnvana menn (mjólkurbílstjórar) ...komu austur yfir Hellsiheiði eftir sólarhrings útivist í tvísýnni baráttu við snjó og storm. Það beið þessara manna ekki mjúk hvíla. Á bílinn var aftur hlaðið vörum austur í Mjólkurbúi Flóamanna og Kaupfélagi Árnesinga ...á meðan bíllinn var heill og bílstjóra entist þrek til að sitja undir stýri og moka bilinn áfram í ófærðinni".
Meira um mjólkurbílstjóra 1942 og 1944.

Mjólkurbíll og bílstjóri:
Vefurmyndir.vogar.is (opnast í nýjum flipa)

Mjólkurbíll:
Vefurmyndir.vogar.is (opnast í nýjum flipa)

Nýlegar loftmyndir af Selfossi, smellið á, :
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Bjössi á mjólkurbílnum, smellið:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1929

  • Ægir drifinn Dísilvél.
  • Páfagarður gildi fær
  • Einsöngvari Karlakórs
← 1929Páfagarður gildi fær1929 →Einsöngvari Karlakórs