Einsöngvari Karlakórs
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Einsöngvari Karlakórskom frá Skagafirðiúr hálsi drundu þrumur Þórsen þeyrinn lygn er kyrrðiBirkis sýndist Stefán stórsstuðnings ríflegs virðisvo röddin, meinti Richard Thors,rétt að skóluð yrði.
Heimildir og samhengi
Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, bls. 203:
,,ALVEG SAMA HVAÐ ÞAÐ KOSTAR.
Einhver mesti söngvari Íslendinga á 20 öld, Skagfirðingurinn Stefán Guðmundsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Stefán Íslandi, var bláfátækur verkamaður í Reykjavík þegar Magnús Jónsson guðfræðiprófessor og alþingismaður (sjá 1942), kom honum í kynni við Richard Thors árið 1929. Stefán, sem þá var aðeins 22 ára gamall, hafði um skeið sungið (einsöng) með Karlakór Reykjavíkur og sótt söngtíma hjá Sigurði Birkis. Hafði hann vakið athygli söngunnenda í bænum. ...ákvað Richard að kosta söngnám Stefáns á Ítalíu. ...
Rausnarskapur Richards Thors lagði grundvöll að hinum (þá) einstæða listferli Stefáns Íslandi, sem varð nafnkunnur söngvari á Ítalíu, Þýskalandi og Norðurlöndum".
Richard Thors og Kveldúlfur kostuðu ferðir, föt, fæði, húsnæði og nám Stefáns í Milano.
Stefán Íslandi syngur:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Richard Thors, sjá1916, en einnig 1906 og 1915.