,,Landið er fagurt og frítt
L,,andið er fagurt og fríttog fannhvítir jöklanna tindar"en drekkt er ei hengt eða hýttné hegna má nokkurrar syndar.
Heimildir og samhengi
Andstaða var á Íslandi við breyttar og vægari refsingar sem Bjarni Thorarensen kallaði ,,skálkamiskunn, trúarhálfvelgju og stjórnleysi 19. aldar” og fékk Níels skálda til að yrkja rímu þar um: ,,Urðarmýsnar í Ódáðahrauni”. Menn og minjar V, bls. 19, 128.
Sm. Jón Espólín var á sama máli, sbr. eftirfarandi pistil hans og hefði getað ort ofanritaða saknaðarvísu líkt og Jónas fjórum árum síðar af öðru tilefni.
Saga frá Skagfirðingum II, 119n:
,,Í þann tíma var allt orðið á annan hátt en fyrr hafði verið ...og ekki að byggja á í nokkru málefni hversu það mundi ganga í Hæstarétti, en öll stjórn utanlands var svo mild við sakamenn og illvirkja að þeir máttu ei annars en verða þess varir ...var það andi stjórnarinnar að engum illgjörðamanni mætti þröngva með neinu til meðkenningar og þó engan dæma nema full vitni fengist að verkum hans ...og mjög lint var tekið á hórdómum og alls konar lauslæti...illgjörðamenn áttu sér félaga sem helst var í Húnavatnssýslu... málarekstur varð að vera svo langur sem illvirkjar vildu, ef mál voru stór svo að kæmu fyrir Hæstarétt, en þar var oftast vís von linunar, og ef hún fékkst ei, þá linaði konungur sjálfur".
Espólín var ekki einn um þessa skoðun.