Í Langadal brjóta lög af fíkn
Lag Rösklega hún gengið gat - Bj.Þ. 887
Í Langadal brjóta lög af fíknþar látlaust ys og þys varað Bjarni á Strjúgi sé nú sýknsegja látum oss þrisvar.
Langdælingar ljúga af snilldlögin um hórdóm illa gildutanlandsstjórnin öll svo mildað illvirkjar fremja brot að vild.
Heimildir og samhengi
Húnvetnska glæpaöldin (~1820- ~1863) var hvað skæðust í Langadal.
Flimtan kvað, að þar væru jarðir metnar eftir því hversu sauðaþjófnaði yrði við komið.
Orðin: ,,þar látlaust ys og var” hefur Magnús Björnsson á Syðra-Hóli (1889-1963) um ástandið í Langadal í þætti rituðum um Bjarna Sveinsson á Strjúgi (1801-1844) sem þar var álitinn stórþjófur, en þetta ár sýkn í Hæstarétti vegna ónógra sannana.
Hætt var að beita pyntingum og það lögbundið 1837. (1828, 1829, 1830).
Saga frá Skagfirðingum II, 119n: ,,Í þann tíma var allt orðið á annan hátt en fyrr hafði verið ...og ekki að byggja á í nokkru málefni hversu það mundi ganga í Hæstarétti, en öll stjórn utanlands var svo mild við sakamenn og illvirkja að þeir máttu ei annars en verða þess varir ...var það andi stjórnarinnar að engum illgjörðamanni mætti þröngva með neinu til meðkenningar og þó engan dæma nema full vitni fengist að verkum hans ...og mjög lint var tekið á hórdómum og alls konar lauslæti...illgjörðamenn áttu sér félaga sem helst var í Húnavatnssýslu ...málarekstur varð að vera svo langur sem illvirkjar vildu, ef mál voru stór svo að kæmu fyrir Hæstarétt, en þar var oftast vís von linunar, og ef hún fékkst ei, þá linaði konungur sjálfur".
Skv. eftirfarandi er húnvetnsku glæpaöldinni lokð þegar hrossa- og sauðasalan hefst á síðasta þriðjungi 19. aldar.
Jónas Jónsson: Aldir og augnablik II, 145, útg. 1965: ,,Fyrir einni öld var enskur hestakaupmaður (John Coughill?) á ferð um Húnavatnssýslu. Hann staðgreiddi sauði og hesta með gulli og flutti það í klyfjum um landið. Eitt sinn týndist klárinn með gullkistunni. Englendingurinn sýndi engin æðrumerki. ,,Á morgun kemur góður bóndi með klár og klyfjar til mín," sagði Bretinn. Honum varð að spá sinni. Bóndi kom með hest og gull til eigandans. Þá sagði Englendingurinn: ,,Þetta gæti hvergi gerst nema á Íslandi"".
Um ástandið í Langadal á þessum tíma vitnar séra Pétur Guðmundsson í Annál 19. aldar l, bls. 415 (1829): ,,Lagði sýslumaður það til, að menn mættu óstefndir á Hlíðarþingi og nefndi til Eyjólf Jónsson er þá var í Selhaga. Bjarni (á Strjúgi) kvað undarlegt að sýslumaður vild kalla til vitnis þann mann, er svo mikið illmenni væri, að einskis mundi svífast. ... Sýslumaður kvað óvíst hver mest illmenni væri. ... Kom kvennmaður að Selhaga um kveld og reið hesti Strjúgs-Bjarna. Spurði hún að Eyjólfi og vildi finna hann. Bar hún honum kveðju Bjarna, fjekk honum spesíu og sagði að hann beiddi hann að bera sjer eigi mótvitni. Eyjólfur tók við, reið síðan ... á fund sýslumanns ... og sór að Bjarni hefði falað af sjer að drepa þá Arnljót hreppstjóra og Strjúgs-Jón (tengdaföður Bjarna), en hann skyldi drepa Pétur Skúlason fyrir Eyjólf og leggja 10 spesíur á milli. Gvöndur Brandsson bar og það, að Bjarni hefði falað af sjer að drepa Strjúgs-Jón og boðið sjer til 10 spesíur, mundi best að kyrkja hann. ... Fleiri menn báru það með Eyjólfi að Bjarni vildi kaupa af sjer ljúgvitni eða þá að leyna nokkru. Svo urðu mörg vitnin tvísaga að sýslumaðurinn furðaði ... og þótti honum enginn kostur að átta sig á máli þessu".
Þetta gerist nyrðra á sama tíma og Kambránsmál er til rannsóknar í Árnesþingi, sjá 1827.
Enn um Strjúgs-Bjarna 1830:
Séra Pétur Guðmundsson í Annál 19. aldar l, bls. 425: ,,Reiðhestur Holtastaða-Jóhanns stunginn í hesthúsi tvo stingi. ... Var illvirki þetta eignað lausingja þeim er Sæmundur hjet Þorsteinsson. ... Ætluðu flestir að Bjarni Strjúgs-mágur keypti hann til af hatri við Jóhann (,,J. einn frægasti sauðaþjófur Íslandssögunnar" - Wikipedia).
Bjarni var ofláti mikill í klæðaburði og öðru og vildi ógjarnan vinna þau verk er saurguðu hann ið ytra og fjekk því aðra að starfa að slíku fyrir sig. Hafði hann ærið þungan hug á Eyjólfi Jónassyni. ... Hugðu skynsamir menn að enginn mundi þá óaldarmaður verri eða slægari í Húnaþingi en Bjarni þótt sumir hlutir væru honum vel gefnir einkum er ósjálfráðir voru".
Vefurstefaniasteinunn.wordpress.com (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)