Konur hafa kopp til taks
Lag Eg eri jólamaðurin - (H.J. Höjgaard)
Konur hafa kopp til taksað karl þurfi' ei fram að stígaþví ekki standa þeir upp neitt straxef þeir þurfa að míga.
Heimildir og samhengi
Öldin sextánda, bls. 80, greinir að Gories Peerse nokkur í Hamborg riti Íslandslýsingu sem nálgast efni vísunnar.
Þar sitja karlar að drykkju án afláts, þ.e., þurfi þeir að létta á sér eru konur tilbúnar með koppinn og sjá um að þangað rati affallið án þess drykkja stöðvist þar fyrir.
Ditmar Blefken: „Islandia, sive populorum" útg. 1607 og endurútg. 16 sinnum:
,,Sem þeir drekka syngja þeir um hetjudáðir forfeðra sinna. Ekki syngja þeir eftir neinni vissri reglu eða lagi, heldur hver með sinu nefi. Ekki telst sæmandi að neinn standi upp frá drykkjuborðum til þess að kasta af sér vatni. Verður þá heimasætan eða einhver önnur kona að gæta borðsins og taka eftir, ef einhver gefur henni bendingu. Hún réttir þá hinum sama kopp undir borðið".
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurheimskringla.blog.is (opnast í nýjum flipa)