Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1562
1562
1562

Heitsamkomu halda á Grund

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

HHeitsamkomu halda á Grundað harðindunum linnitil guðsþakka ef gefi pundglæðast tíðin kynni.

Glúmur Gylfason · 1562

Heimildir og samhengi

Hér fara Eyfirðingar að kaþólskum sið, sbr. það fræga ár, 1262, þegar Gissur jarl stóð fyrir vatnsföstu á Ólafsmessu 29. júlí af sömu ástæðu með þeim árangri ,,að undrum sætti”, einnig Norðlendingar 1365, (gáfu eina alin af 100 til páfagarðs vegna harðindanna. Kýrverð 120 álnir). Og enn, 1477, hétu Norðursýslungar á almættið, og/eða dýrlinga, gjöfum til fátækra sem og messum vegna ,,Kverkfjalla”-gossins þegar Jökulsá flæddi úr farvegi og spillti löndum. (Nú segja jarðfræðingar þó, að gosið hafi ekki verið úr Kverkfjöllum).AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Fyrir siðbreytingu voru kóngur, og þó einkum kirkja, búin að sölsa undir sig þvílíkar jarðeignir að tíundarbærar jarðir stóðu illa undir framfærslu sveitlægra, en nú hafði kirkjan ekki fyrri fjárráð auk þess sem trúin skyldi nú veita þá sáluhjálp sem góðverkin áður. Eyfirðingar kenndu þessu um harðindin og skyldi nú snúa veðráttunni til betra horfs með því að líkna þurfandi. Lofuðu að um alla framtíð gæfi hver skattbóndi eyri, en aðrir þó minna.

Hér er á ferðinni vantraust á siðbreytinguna án þess að spurt sé: hverju reiddist Guð 1261-2 ?
Fjórum árum síðar er allt við hið sama í veðrinu, því að þá, 1566, heita Skagfirðingar við messu á Miklabæ þriðjudaginn fyrsta í einmánuði, að hver skattbóndi gefi 1 eyri til fátækra. Eyrir: 6 álnir vaðmáls. Kýrverð 120 álnir.

Páll Eggert Ólason: Saga Íslendinga IV, 232: ,,Þó hefir biskup sjálfur (Ólafur Hjaltason) ekki enn verið að öllu laus undan fornum kreddum. Til marks um það er, að hann skrifar fyrstur undir heitbréf Skagfirðinga 1566 vegna óáranar með áheitum í guðsþakkaskyni, bænagerð og helgihaldi".
Aðrar heimildir: Ísl. fornbrs. XlV, 463, Öldin sextánda, 88.

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1561Konur hafa kopp til taks1563 →Norðursýslu sviptur er