Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1763
1763
1763

Höldar gullna hamra slá

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

HHöldar gullna hamra sláHóladómkirkjunni.Kóngur græddi ekki áÍslandshöndluninnien Vestmannaeyjum vinduspilvaldi senda – tóliðþótti kominn tími tiloss tileinkuðum hjólið.

Glúmur Gylfason · 1763

Heimildir og samhengi

Hóladómkirkja vígð; Saga frá Skagfirðingum I, 85, við árið 1756: ,,Var þá í ráði að byggja kirkju góða að Hólum og höfðu kirkjur Dana og Norðmanna gefið þar til og þar með Íslendingar um nokkur ár undanfarin; allir saman 3 eða 4 hundruð dali hvert ár.
Kom (1757) út þýskur múrmeistari (Sabinsky) til að smíða hana. Var tekið til að brjóta upp grjót rautt úr Hólabyrðu... og sprengt með púðri en ekið heim á vagni um veturinn. Var það haft til þeirrar byggingar er þar var síðan ágætlega gjör".
Harald Gustafsson segir, vagninn hafa haft hjól, ,,Mellan kung och almoge" 246, enda er í bréfi sm. Jóns Snorrasonar talað um vagn og sleða.
En á Hólum notaði sá þýski trissu á gálga til að hefja upp grjótið. Trissa er hjól með skoru í fyrir taug. Líklegt að slíkt hjól hafi komið við byggingarsögu Viðeyjarstofu 1754.

Skagfirðingar undruðust þrek og úthald Þjóðverjans, sem krafðist hins sama af Íslendingum, en þóttist verða fyrir vonbrigðum, þeir væru latir, svifaseinir, ynnu með vetlinga á höndum og hefðu ekki verksvit. (Sjá og hjá Helga Þorlákssyni, Á sögustöðum, 100).

Í ,,Mellan kung och almoge" frá bls. 241, getur Harald Gustafsson einkum sr. Þorsteins Péturssonar og Höskuldsstaðaannáls sem heimilda fyrir því að bændur og / eða vinnumenn hafi unnið að kirkjubyggingunni í ólaunaðri þegnskylduvinnu eins og tíðkaðist ytra, en var nýjung hér og óvinsælt.
Hreppar nyrðra voru skyldaðir til að senda einn eða tvo menn til starfa, ,,en til þeirra voru helst sendir liðléttingar og lausagopar" segir Gils Guðmundsson (Gestur 3, 179).

Verklok voru áætluð 1759, en þá voru veggir aðeins komnir í gluggahæð svo að Sabinsky var sendur annar múrari, landi hans, Schlätzer nokkurn og til þaksins fékk hann trtésmið, Willumsen að nafni.
Gils Guðmundsson, Gestur 3, 178, kveður L. Harboe hafa átt drýgstan þátt í að kóngur lét í Noregi og Danmörk efna til almennrar fjársöfunar til endurreisnar Hóla. Mikð fé safnaðist, en þegar stórbruni varð í Björgvin 1757 og fjöldi fólks varð húsnæðislaust, þá var gripið þess fjár þeim til hjálpar.

Hugmyndina að því að hlaða kirkjuna úr steini fengnum af staðnum átti am. Magnús Gíslason, en biskup 1313 til 1322, Auðunn rauði Þorbergsson, hafði byrjað á slíku verki en ekki unnist ævin til að ljúka því, en það efni var notað í forkirkjuna.
Steinkirkjan 1763 leysti af hólmi timburkirkju frá 1624, sem kennd var við Halldóru biskupsdóttur sem hélt staðinn kararár föður síns, Guðbrands Þorlákssonar.

Gils Guðmundsson segir, ,,Frá ystu nesjum" 5. hefti, bls. 35, að mælt sé að Magnús digri Jónsson í Vigur, d. 1702, hafi útvegað sér fjórhjóla vagn frá Danmörk og látið aka sér upp túnið í Ögri í þeim vagni er hann sótti þar kirkju.
Bróðir Magnúsar var Oddur digri, sem hestar fengu ekki borið. (1636, 1689, 1715), en Odduer sá var móðurafi Gísla Magnússonar, sem var Hólabiskup 1755-1779, þ.e., á meðan kirkjan var í byggingu.

Kerra með tveimur hjólum er tvívegis nefnd í ritheimild frá Bessastöðum, 1595 og 1606, þ.e. frá tíð Guðbrands biskups.. (Guðmundur Ólafsson Bessastaðarannsókn 1987).
Vinduspilið til að setja upp báta kóngs í Vestmannaeyjum var enn eitt hjólið.

Konungsversluninni fyrri lýkur með 250.000 rd. tapi.
Við tekur að vori 1764 Almenna verslunarfélagið sem stundaði þríhyrningsverslun með þræla og nýlenduvörur, þ.e. keypti þræla og flutti frá Christiansborg á Gullströndinni í Afríku, nú Ghana, og seldi í Vestur-Indíum fyrir nýlenduvörur sem verslað var með í evrópu, en fjárhagur félagsins orðinn slæmur þegar það tók við Íslandsversluninni.

Alfræðida.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1763

  • Finnast dæmi að frú með skeggi
← 1762Sjaldan drap sú kona kríu1763 →Finnast dæmi að frú með skeggi