Finnast dæmi að frú með skeggi
Lag Einn var að smíða ausutetur
Finnast dæmi að frú með skeggifangi haldi þóí Stykkishólmi af hanaeggiHofgård kaupmaður dó;.;Hofgård kaupmaður dó;.;í Stykkishólmi af hanaeggiHofgård kaupmaður dó.
Heimildir og samhengi
Grímsstaðaannáll, Ísl. annálar III, 552: ,,Sagt var að einn hani hefði eggi orpið í Stykkishólmi. ...Kaupmaðurinn í Stykkishólmi hét Nicolaus Hovgaard. Hann varð kvillaður skömmu eptir það hingað kom; barst og, að þegar þessi hani fannst, hafi hann látið hann drepa og krydda fyrir sig, og eptir það lagðist hann til fulls, og lá fram á haustið, með stórverkjum stundum.
Var svo sent eptir Medicus Bjarna Pálssyni suður á land; kom hann í Stykkishólm 2. eður 3. Septembris, en kaupmaður deyði nóttina milli þess 3. og 4. Septembris, en jarðsettur 8. sama mánaðar".
Með skáldaleyfi er kaupmaður látinn eta eggið í stað hanans. (Salmonella?).
Jónas Hallgrímsson orti Skólaglettu: ,,Benedikt Scheving skæður..." um jafnaldra sinn, Benedikt Scheving Guðmundsson, seinna prestur í Danmörk, og sagði hann ,,klakinn út / úr eitruðu hanaeggi". JH Ljóðmæli, Helgafell, bls. 176.
Kaupmaður var Hofgaard þessi fyrr í Bíldudal og gaf þá, 10 árum fyrr, 1752, altaristöflu þá sem enn er í Selárdalskirkju og tekin var fram yfir þá sem Samúel Jónsson vildi gefa kirkjunni rúmum tveimur öldum síðar og smíðaði Samúel þá aðra kirkju yfir sína altaristöflu. (Barðstrendingabók,115).
Skv. séra Sigurjóni Einarssyni, Undir hamrastáli, bls. 143, voru stálpaðir hanaungar ekki etnir nema í undantekningartilviki, en fleygt í Arnarfirði svo seint sem 1936 og líklega lengur.
Vefurthespruceeats.com (opnast í nýjum flipa)