Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1899
1899
1899

Hundur vildi ei víkja frá

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

HHundur vildi ei víkja frávotri gröf síns herrafram á sínar lappir láuns lífið út nam þverra.

Glúmur Gylfason · 1899

Heimildir og samhengi

Kristmundur Bjarnason, Skagfirskur annáll, bls. 263, 1899:
,,Bátur með 8 mönnum fórst í kaupför frá Haganesi til Hofsóss.
Til ferðar réðust ...fjórir bændur og þrír piltar, ókvæntir. Skömmu eftir að báturinn lagði frá dimmdi að með stórhríð og stærði sjó. Síðdegis stytti aftur upp og gerði gott veður. Liðu svo þrjú dægur að ekkert fréttist. ...Leit var hafin, en ekkert fannst. ...Það var trú manna að bátnum hefði borist á ...milli Sléttuhlíðar og Fljóta. Var þá miðað við tímalengd frá því lagt var af stað uns óveðrið skall á ...styrkti þann grun að þarna á bökkunum ...lá hundur eins bátsverja, Ásmundar Hafliðasonar, er hafði elt hann frá Neskoti til Haganesvíkur ...var ályktað að seppi hefði lagst við sjóinn er bátnum barst á – þótti þetta stappa nærri vissu er seppi fékkst ekki til að fara þaðan, hvernig sem eftir var leitað og ekki vildi hann mat þiggja en dró sig síðar upp í hesthús sem Ásmundur hafði hýst hross í um veturinn og þar lá hann uns hann dó, líklega bæði úr sulti og sorg”.

Til umhugsunar: Þjáðist hundurinn af samviskubiti – hafandi ekki komið eiganda sínum til hjálpar?
Gísli Konráðsson segir nefnilega í Sögu Skagstrendinga og Skagamanna, bls. 115, frá því er skip lagði út frá Höfða 1834, að ,,einn röskur maður (Dani) gekk í reiðann, datt útbyrðis og drukknaði. ...en þegar stökk hundur hans eftir honum og fórst".

Þessa hundahegðun rímar illa við hátíðarræðu Bjarna frá Vogi af svölum Alþingishússins 17. júní 1914, sjá þar.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1899

  • Olían þykir gera gagn
  • Við gæslustörf Hannes fór á flot
  • Ferguson kunni fleira en prent
← 1899Ferguson kunni fleira en prent1900 →Fyrir Björg og bónda í Vigur