Ferguson kunni fleira en prent
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Lag var stofnað um fótamennt
Ferguson kunni fleira en prentog fjörið óx mjög þá erer fékk síðar nafnið KR.
Heimildir og samhengi
Fótboltafélag Reykjavíkur stofnað 16. febrúar.
Bjarna frá Vogi (1908) urðu dýrkeyptar gönguferðirnar með skólapiltum vestur á Mela. Rekinn úr kennarastöðu við Lærðaskólann 1904 ,,fyrir vinsældir meðal þeirra" segir í ævisögu bróður hans, séra Magnúsar Blöndal.
Á Melunum var sparksvæði drengja og samdi málsnillingurinn, Bjarni, þar orðið knattspyrna, er breytti nafni félagsins, skammstafað KR. Bjarni breytti líkaerlend orðinu lottó í happdrætti.
Eftirfarandi er tekið af heimasíðu KR,
Vefurkr.is (opnast í nýjum flipa)
,,Áhrifavaldur í íslensku íþróttalífi á síðustu árum 19. aldar var James B. Ferguson, skoskur prentari sem starfaði rúmt ár í Ísafoldarprentsmiðju. Að hans frumkvæði var stofnaður fimleikahópur ungra pilta ,,Reykjaviks Gymnastics Club” árið 1895.
Ferguson þekkti leik sem stundaður hafði verið sem keppnisíþrótt á Bretlandseyjum um nokkurra áratuga skeið, knattspyrnu ...Björn Pálsson Kalman, var sérlega áhugasamur og lagði sig fram um að þeir félagar tækju sem allra mestum framförum í leiknum. Hann útvegaði sér eintak af ensku knattspyrnureglunum, þýddi þær smám saman á íslensku og las upp úr þeim á æfingum. Þannig náðu menn áður en langt um leið valdi á reglunum og gátu leikið löglega".
Fyrsti formaður KR lýsir - tekið úr Sögur Reykjavíkur I, 484: ,,...knattleikur þá var aðallega einmenningsleikur ... hver hugsaði um sjálfan sig. Samspil þekktist þá alls ekki, flestir kölluðu: ,,til mín, til mín!"".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Frá 1908 þjálfaði trúboðinn og enskukennarinn Arthur Gook lið til að heyja ,,knattsparkskeppni” 17. júní 1909 á Akureyri.
(Jón Hjaltason, Saga Akureyrar III, 265.)
Ekki þarf þó að spyrja að Ísfirðingum. Þeir voru enn fyrr á ferðinni í þessu sem öðru.
Meistari Þórbergur Þórðarson bjó rétt við Melavöllinn í Reykjavík:
,,Pistilinn skrifaði...,,, bls.12: ,,...fótboltinn ...er orðin landlæg plága hér í kvöldroðarykinu á Melunum og sýnir hverjir dauðans aumingjar vér erum enn í þekkingu og æðri og fínni menningu. Jafnæsandi óhemjuskapur heimskar ekki aðeins og útslítur kröftum þeirra sem halda honum uppi, heldur tryllir hann jafnvel fjölda fólks, sem lítið má missa, frá rósemd og skynsamlegu viti. Í margar þessar ánalegu hreyfingar fer óguðlega mikil orka forgörðum. Þær eru blátt áfram óhagrænar miðað við ...nirfilsskap þjóðarinnar í garð þessara fáu vesalinga sem hafa lagt sig niður við að hugsa".
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, bls. 41: ,,Skemmtanir og skipuleg leikmót þekktust þá ekki hér um Borgarfjörð (á 19. öld). Auk rétta og kirkjuferða voru brúðkaupsveislur einu skemmtisamkomurnar, en æskan mátti þá sitja heima. Til ýmissa heimilsleikja gripu börnin þá svo sem skollaleiks ... mætti segja að sú kynslóð sem þá var að vaxa hefði ekki lifað neina æsku".