Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1884
1884
1884

Hákarli af Pétur Hoffmann

Hljóðbrot0:00

Lag Varnæs' Sølvbryllupssang:

Femogtyve år er gået

HHákarli af Pétur Hoffmannhirti bara lifrinaþeir sem vissu' að væri' að fá h'annvildu hirða skrokkana.Varla þótti líft á landiLitlateigs- þó súðin skreiðá Akranesi ekkna vandiúrlausnar þar strembinn beið.

Glúmur Gylfason · 1884

Heimildir og samhengi

Hoffmannsveðrið. Þorsteinn frá Hamri, Hallgrímur smali og húsfreyjan á Bjargi, bls. 72-74. Úrdráttur:
Á jólaföstu hlóð Pétur H. Hoffmann á Akranesi margsinnis skip sitt af hákarlslifur - henti öðru.
7. janúar eltu hann tveir bátar á miðin til þess að hirða hákarlaskrokkana.
Með aftaka ofsa brast þá skyndilega á slíkt veður að furðu þótti gegna. ,,Þá fórust þrjú skip, eitt af Álftanesi og tvö af Akranesi með alls 27 mönnum ...og bátur á Hvalfirði með tveimur mönnum”.

Auk skips PHH fórst skip Þórðar Guðmundssonar frá Háteigi. Þriðja skipinu stýrði Ólafur Bjarnason á Litlateigi. Hann var við níunda mann og tókst um síðir að lenda skipinu fyrir innan Mela. Um fimmleitið guðuðu bátsverjar á glugga á Melum og þóttust fæstir skilja með hverjum hætti þeir væru úr helju heimtir, því svo ægilegt þótti á landi að lítil von væri til að komast lífs af á sjó.
Lík Þórðar á Háteigi og manna hans, sex, rak á land á Melum sem og skipið lítt skemmt.

Gerningaveður þetta átti sér skýringu:
Þrettándakvöldið ,,kveiktu góðglaðir brennustjórar í olíubornum tunnum og tjöruköggum og eldtungurnar teygðu sig til lofts við mikinn fögnuð viðstaddra” og skotum hleypt af byssu.
Aldinn þulur horfði ýmist til himins eða á bálið og hafði á orði, að óguðleg væru þessi skot upp til hinna skínandi stjarna:
,,Mikið má vera ef þvílíkt og annað eins hefnir sín ekki”.

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1884

  • Kunni sér vart læknir læti
← 1884Kunni sér vart læknir læti1885 →Banka vilja bændur hafa