Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1884
1884
1884

Kunni sér vart læknir læti

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn þarf að óttast síður

KKunni sér vart læknir lætiþótt lýðir tryði´ ei rétt það mætihvort silfurreynir rætt sig gætií Reykjavík við Aðalstræti.

Glúmur Gylfason · 1884

Heimildir og samhengi

Elsta tré Reykjavíkur er silfurreynirinn í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Hann gróðursetti Hans Jacob George Schierbeck landlæknir 1884.
Þó að Íslendingar væru stoltir af löndum sínum sem gegndu háum embættum í Danmörk, allt frá Jóni Eiríkssyni til próf. Jóns Helgasonar, ætlaði allt vitlaust að verða þegar danskur maður var skipaður landlæknir á Íslandi, H. J. G. Schierbeck.
Hann varð Reykvíkingum lyftistöng í garð- og skógrækt og átti frumkvæði þess að Garðyrkjufélag Íslands var stofnað 1885.
Enn má sjá vott af garði hans þar sem er Landfógetagarðurinn við Aðalstræti, en þar var minningarskjöldur settur 1986 og í garðinum stendur umræddur silfurreynir, elsta tré í Reykjavík.
Heimild: Mánasilfur IV, útg. Iðunn, þáttur Finns Jónssonar, bls. 41.

Hjá Einari Laxness í Íslands sögu III, 44, er fjallað um upphaf skógræktar hérlendis og birt teikning úr Íslandsferð P. Gaimard af reyni, gróðursettum 1797 í húsgarði á Akureyri. Skv. Hjalta Jónssyni í Sögu Akureyrar II, bls. 108, gróðursetti E. Möller þar eplatré þetta ár, sem 1909 gaf 5 epli í ávöxt.

Úr BA ritgerð Jóns Páls Björnssonar við HÍ 2010:
SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa):
,,En hvers vegna átti Schierbeck svona sterkt tilkall til embættisins? Í fyrsta lagi hefur það ekki dulist heilbrigðisyfirvöldum í Kaupmannahöfn og þar með Johannes Nellemann Íslands- og dómsmálaráðherra, að ekki höfðu orðið sömu framfarir í heilbrigðismálum á Íslandi áratugunum á undan og einkennt höfðu nágrannalöndin. Nýjungarnar snérust aðallega um sýklafræði og sýklavarnir og niðurstöður skoska læknisins Josephs Listers (1827-1912) um sýklaeyðingu (e. antiseptic) sem birtust 1867 höfðu valdið straumhvörfum í hand- og skurðlækningum á Vesturlöndum. Þegar Schierbeck stundaði sitt læknanám voru kenningar Listers orðnar viðurkenndar en Jónas Jónassen og Jón Hjaltalín voru af eldri kynslóð lækna. Þeir síðarnefndu þekktu reyndar báðir þessar nýju kenningar og Hjaltalín hafði meira að segja þýtt um þær grein, en þeir tileinkuðu sér aldrei hinar nýju starfsaðferðir. Í hinu stóra riti, Lækningabók fyrir alþýðu, sem Jónas gaf út árið 1884 er til dæmis hvergi minnst á sýkla, sýklaeyðingu eða bakteríur yfirleitt þrátt fyrir að bakteríufræðin hafi þá þegar verið orðin ein helsta undirstöðugrein læknavísindanna".

Schierbeck hafði ekki staðist það íslenskupróf sem danskir máttu þreyta til að fá embætti hér, en ,,ágiskanir voru um að prófdómurum hefði verið mútað til að fella hann" (Velvakendur?) sjá ,,Hugmyndaheimur Páls Briem", bls. 24., en Jónassen var nátengdur Verðandimanninum Hannesi Hafstein. Íslenskuprófið tók Schierbeck síðan á Íslandi.

Það var Kristján VIII. sem mælt hafði svo fyrir 1844, að Danir sem hlytu opinber störf á Íslandi skyldu standast próf í málinu.
Aðalgeir Kristjánsson birtir á bls. 356 í ,,Hafnarslóð" ávarp sem íslenskir menntamenn ytra afhentu konungi þá í þakklætisskyni. Upphaf þess er svohljóðandi:
,,Þjóð vor hefur ætíð fundið með sjálfri sér, að guðleg forsjá hefur falið henni á hendur að varðveita hina dýrmætu andlegu auðlegð fornaldar Norðurlanda ... að hin gamla hetjutunga vor fengi aftur öll réttindi sín ...".

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1884

  • Hákarli af Pétur Hoffmann
← 1883Ingibjörg Þorkels frá Óseyrarnesi1884 →Hákarli af Pétur Hoffmann