Þjófar fái líf sitt lengt
Lag Ef að mér til ununar - Bj.Þ. 828
Þjófar fái líf sitt lengtlögum fagnar delilengur skal ei hýtt og hengthrossi og sauð þótt steli.
Heimildir og samhengi
Hýðingar felldar úr lögum á Íslandi 1869.
Vísindavefurinn: ,,Árið 1869 voru sett ný hegningarlög, í aðalatriðum í samræmi við dönsk lög, og var þá felld úr lögum dauðarefsing fyrir dulsmál og blóðskömm. Árið 1928 var dauðarefsing afnumin með öllu”.
Sjá til samanburðar1832, Langadalsvísu síðari og skoðun Espólíns á mildum refsidómum.
Íslensk orðabók Forlagsins þýðir deli með svoli, eða sem afbrigðilega stafsetningu af déli, sem merki djöfsi.
Sagnir og þjóðhættir Odds Oddssonar, Rvk. 1941, bls. 15, hefur ,,deli" sem staðgengil nafns á stórfiskum, stökklum, t.d. höfrungum, sem varast skyldi að nefna á sjó.
Guðmundur Daníelsson, rithöfundur, var á því að deli væri slettustytting af delinquent, sem þýðir afbrotamaður á rómönskum tungumálum og er slett í öðrum - jafnvel íslensku.
Fjórða skýring er að deli eigi við drykkjumann sem haldinn er delerium, þ.e., ofskynjunum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)