Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1869
1869
1869

Núna syrgir Norðurland

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

NNúna syrgir Norðurlandnú er brostinn strengur,,yfir kaldan eyðisand"ei fer Kristján lengur.

Egypta- um lög og -landlangur skurður gengur,,yfir kaldan eyðisand"ei fer Kristján lengur.

Glúmur Gylfason · 1869

Heimildir og samhengi

+ 9. apríl Kristján Jónsson Fjallaskáld f. í Krossdal í Kelduhverfi 1842.
Að föður sínum látnum, 1847, átti hann illt atlæti með fóstra sínum í Ási, og eftir 12 ára aldur einn til 1859 á ýmsum bæjum þar í Öxarfirði, en þá réðist hann vinnumaður til Hólsfjalla, sem hann síðar er kenndur við: Fjallaskáld.
Andlegan og líkamlegan þroska tók hann út fyrr en flestir, gekk eins árs og las og orti frá máltöku að kalla.
1863 ferðast hann til Latínuskólanáms um Sprengisand ásamt frænda sínum, Jóni Sigurðssyni alþingismanni á Gautlöndum (1889). Þá er talið að hann hafi ort ,,Yfir kaldan eyðisand".

Tómas Guðmundsson ritar í Minnisverðir menn, bls. 244: ,,...norður í Kelduhverfi var að allra dómi mikil drykkjuskaparöld og bar ekki a öðru en að hvers konar lausung þrifist þar ágætlega ...Er Kristján kom fyrst suður til Reykjavíkur var hann að sögn skólabróður síns ,,þegar orðinn meiri drykkjumaður en svo að sú ástríða mundi læknast"."
Kristján sagði sig úr skóla vorið 1868, þegar hann átti von á að verða vikið þaðan fyrir óreglu.

Eftir Indriða Einarssyni er haft: ,,Hann bar höfuð og herðar yfir samtíðarmenn sína í skólanum og var mikils metinn af okkur sveinum".
Heimild: Tómas Guðmundsson, Minnisverðir menn, bls. 229.

Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar I, bls. 89, greinir frá fyrstu (?) viðbrögðum þing- og sýslumanna við vaxandi ofdrykkju.

Súesskurðurinn opnaður.
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1869

  • Þjófar fái líf sitt lengt
  • Nokkuð þykir brugðið Bleik
← 1868Höfundur séra Sigvalda lést1869 →Þjófar fái líf sitt lengt