Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1788
1788
1788

Etur skáld það úti frýs,

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

EEtur skáld það úti frýs,öllu dirfist voga:missir prest og Paradís,próförk les hjá Boga.Hempan laus á herðum erhefur tvisvar falliðeinstæðingur aleinn ferÖxnadals í kallið.

.Bogadóttur burt frá rauktil Bæsár þjóðarskáldiðÁ Pegasusi pastor strauk- pilsin freista dáldið -kvæðum frjótt af kappi laukkunni að halda á pennanokkuð þótti glíkur gaukgekk í augu kvenna.

Glúmur Gylfason · 1788

Heimildir og samhengi

1773kom til Hrappseyjar prentsmiðja Boga Benediktssonar (1723-1803).
Prófarkalesari varð þjóðskáldið séra Jón Þorláksson (1748-1819), sjá 1748, enda sviptur kalli fyrir tvær barneignir með konu af ríkri ætt, sem hann þá fékk ekki að eiga.

1774 kvæntist hann dóttur Boga, Margréti (1751-1808), og bjuggu á einni jörð hennar, Galtardal, en uppreist til prestsskapar, 1784, var skilyrt við Hólabiskupsdæmi. Tveimur árum síðar var honum veitt prestsembætti að Bægisá í Eyjafirði.

Annáll VI, 286: ,,Jón Þorláksson í Galtardal, fyrrum prestur í Saurbæ, (Dölum) fékk nú aftur sín geistlegheit í annað sinn, þó mátti hann ei prestakalli þjóna nema í Hólastifti".

Margrét vildi ekki flytjast burt og slitu þau þá samvistir.
Tengdasonur Boga ríka í Hrappsey hélt þá fótgangandi haustið 1788 norður til Bægisár.
Bægisá almennt framborið Bæsá og ritað svo í annálum - sjá 1773.
Einbúinn séra Jón þótti heppinn að ekki missti hempuna oftar, og sagður taka sér gaukinn til fyrirmyndar.
Tilvísun: Sverrir Kristjánsson, Gamlar slóðir, bls. 11 . Sjá og 1819, 1833.

Jóns er enn minnst fyrir snjöll kvæði og þýðingar, dæmi:
Lukkutjón þá að fer ört
ekki er hægt að flýja
betur hefði guð minn gjört
að gelda mig en vígja.

Útsýn frá Bægisá er til Hraundranga enda stendur hann andspænis kirkjustaðnum:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1788

  • Dóra Kobba flest var fært
← 1787Illugi ei brúkaði önnur tól1788 →Dóra Kobba flest var fært