Berst að austan: bóla geysi
Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið
Berst að austan: bóla geysibágt um þessar mundirkonur þjái karlmannsleysikoma' ei börn þar undir.
1610 var þetta ráðið:
Austfirðingar ýmist geldireða skortir kikkiðdrengir þeim að sunnan seldirá 60 álnir stykkið.
Heimildir og samhengi
Skýtur upp kolli vandinn frá 1610?
Djáknaannálar VI, 285: ,,Þetta ár gekk bólan um V-, N- og Austurland og deyði úr henni margt ...af karlmönnum í Múlasýslu, svo að þar urðu margir hjónaskilnaðir og var bágt ástand vegna karlmannafæðar".
1610 var ekki reist virkjun til að fjölga fólki eystra en brugðið á það ráð sem getið er í síðari vísunni.
Fitjaannáll II, 96: ,,Var margur drengur og stelpa á þessu ári (1610) og nokkur fyrirfarandi sumur, flutt sunnan að og í Austfirði, af sýslumanni þar, vegna manndauða og fólksfækkunar.
Drengirnir voru seldir fyrir 60 eður 80 álnir en stelpur fyrir 40 álnir”.
(Kýrverð 120 álnir).