Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1786
1786
1786

Vínnautn Gísla rektors rík

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

VVínnautn Gísla rektors ríkréð þó stjórnin líða' h'anngraut ef fékk þar busi' á bríkbyrja' á mátti' að þíða' h'ann.Oddur Gísla liðið líklengi fannst ei síðan.Kaupstaður þá varð hún Víkog verið hefur síðan.

Glúmur Gylfason · 1786

Heimildir og samhengi

Skólahald lagðist niður í Skálholti eftir jarðskjálftann 1784. Þetta ár byrjar Reykjavíkurskóli hinn fyrri á Hólavelli í húsi sem var dýrt en kalt. Bæði átti byggingarefni það til að hverfa um nætur meðan á smíði stóð og hafi stjórnin í Kh. verslað við sömu Norðmenn og seldu timbur til Dómkirkjunnar í Rvk. þá er eins víst að efnið hafi verið vankantaður úrkastsviður - sbr. bók sr. Þóris Stephensen, Dómkirkjan í Rvk. En þótt þar - við Dómkirkjubygginguna - væru hafðir næturverðir um timbrið, þá dugði það ekki til.

Sverrir Kristjánsson, Með vorskipum, 146: ,,Skólahúsið á Hólavelli bókstaflega rigndi niður á ... réttum 20 árum".
Það ráð sem rektor og sumir kennarar fundu við kuldanum hafði aukaverkun, sem gerði þá óstarfhæfa. (1805).
Saga Íslendinga VIII, bls. 67: ,,Latínuskólinn hafði verið í mikilli niðurlægingu í Reykjavík um og eftir aldamótin að því er snerti kennaralið, húsakost og allan aðbúnað". ...Árið 1803 höfðu 24 skólapiltar af 32 skyrbjúg".

Djáknaannáll VI, 283: ,,Þann 1ta Okt. hvarf séra Oddur Gíslason biskups Magnússonar, prestur á Miklabæ í Blönduhlíð.
Var hann á heimferð frá Silfrastöðum, annexíu sinni, hvar hann hafði embættað um daginn".
Vatnsfjarðarannáll yngsti V, 422: ,,Stóð lítið við hjá sýslumanni, Vigfúsi Scheving á Víðivöllum, átti mjög stutt heim, en fannst ei, þó af 50 manns leitað væri nokkra daga, fyrr en ári síðar".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Reykjavík tilheyrði Seltjarnarneshreppi til 1803 og var lengi kölluð Vík.
Stjórnin tók við sér eftir að út kom, 1776, rit Skotans Adams Smith, Auðlegð þjóðanna, og var þá verslun gefin frjáls öllum þegnum Danakonungs frá 1. janúar 1788. Ekki þótti meira frelsi ráðlegt þá, m.a. af ótta við vöruskort og voru aðspurðir Íslendingar á þeirri skoðun, t.d. Jón Eiríksson.

Reykjavík varð kaupstaður 18. ágúst 1786, íbúar 167, bæjarstjórn þar kom fyrst 1836. Önnur 5 þéttbýli sem urðu kaupstaðir uxu ekki þrátt fyrir þær ráðstafanir, svo sem skattfríðindi, sem gerðar voru til þess að hvetja handverksmenn til búsetu þar og misstu kaupstaðarréttindin 1836 enda var vistarbandið hert samtímis að kröfu Íslendinga, sbr. tilvitnun í Gísla Gunnarsson við 1783. Sjá og 1862.
Kaupstaðirnir voru þessir auk Reykjavíkur: Grundarfjörður, Ísafjörður, Akureyri, Eskifjörður, Vestmannaeyjar,

Jón Þ. Þór: ,,Höndlað við Pollinn", bls. 36: ,,Með því að stuðla að þéttbýlismyndun ...átti að rjúfa kyrrstöðu hins gamalgróna sveitasamfélags sem einkenndist af nýjungafælni og ægivaldi fámennrar yfirstéttar stórbænda og stórjarðeigenda".
(Leiðir hugann að Bændaflokknum 1933).

,,...lífseigar voru áhyggjur af því að iðnvæðing og þéttbýlismyndun ógnuðu stöðu sveitanna". (Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, 331).
Í bændasamfélaginu var litið niður á þéttbýlisfólk, sbr. t.d. viðhorf til Vestmannaeyinga sem áttu ekki betra skilið 1627- a.m.k. þegar kóngur bað um samskot til að leysa þá út úr slaveríinu.

SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1786

  • Framtöl bændur færðu að lyst
  • Berst að austan: bóla geysi
← 1785Eldurinn kom á öllu rót1786 →Framtöl bændur færðu að lyst