Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1698
1698
1698

Hólmfast böðull hýða vann

Hljóðbrot0:00

Lag Ég að öllum háska hlæ

Lag Einn var að smíða ausutetur

HHólmfast böðull hýða vannheyra mátti brestinn16 högg fyrir höndlarannen 100 fyrir prestinn.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Yfirvald skal enginn styggjaillt að þola er best100 fær sá höggin þiggjaer hæðir sóknarprest.

Glúmur Gylfason · 1698

Heimildir og samhengi

Tvær misfrægar hýðingar sama ár.
Hafnarfjarðarkaupmaður, K. Storm, vill ekki kaupa 10 fiska af Hólmfasti Guðmundssyni á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd, sem þess vegna selur þá í Keflavík og því dæmdur af sm. Jóni Eyjólfssyni (d. 1716) til 16 vandarhögga. Þetta mun frægasta hýðing sögunnar, en eftirfarandi hefur lítt verið hampað:

Eyrarannáll III, 397: ,,Strýktur á alþingi Jón Guðmundsson á Klúku í Arnarfjarðardölum fyrir slæmt orðbragð og bréfaskript um sinn sóknarprest, séra Halldór Pálsson (Björnssonar prests í Selárdal); hafði fengið yfir 100 slög svo mjög hrumur var, og eptir næturreið af alþingi eptir lest Ara Þorkelssonar (sm. í Haga) með hverri hann átti heimleiðis að fylgjast, náði aldrei lestinni og hefur aldrei sést síðan hvorki dauður né lifandi. Margt hefur talað verið um þess manns dauða og þá miklu refsing á hann lögð var”.

Morgunblaðið má. 7. mars 2022: Á föstu­dag herti Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti fjöl­miðlalög í land­inu þannig að þeir sem birta „falsk­ar frétt­ir“ um rúss­neska her­inn eiga yfir höfði sér 15 ára fang­els­is­dóm.

Alþingisbók 1698, bls. 81, greinir þau orð er Jón hlaut (dauða)dóm fyrir: ,,Iðaðu nú um álfur heimsins". (Farðu í heimsreisu).

Íslenskar æviskrár um séra Halldór í Selárdal: ,,maður óeirinn, drykkfelldur og átti sífelldar erjur við ýmsa menn, jafnvel biskup sjálfan”. (1699).

Skv. sömu heimild: Við útför systur sinnar 1710 að viðstöddum próf. Árna Magnússyni, varalm. Páli og Jóni biskupi Vídalín ,,lét prófastur (Halldór Pálsson) eins og vitlaus maður og hafði í frammi ósæmileg orð og athafnir í viðurvist líkfylgdarinnar".
Ekki ólíkt því sem sjá má þegar eftirfarandi slóð hefur gengið í 5 mín., og 42 sek.:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

,,Biskup stefndi prófasti daginn eptir til prestaréttar á næsta alþingi”, Jón Aðils í ,,Oddur lm. Sigurðsson". Dæmdur þar á þinginu frá prófastsembætti. (sjá ennfremur 1699).
Hafa skal í huga að næstum tvær aldir eru þar til allir verða jafnir fyrir lögunum í evrópu sem rekja má til áhrifa frá frönsku byltingunni 1789, sem sumir rekja til gosins í Lakagígum 1783.

Að efri séttir þjófélagsins færu illa með þær lægri var lenska í evrópu.
J.S.Bach sat mánuð í fangelsi 1717 fyrir að segja upp stöðu hjá hertoga í Weimar og var heppinn þar sem hornleikari fékk 100 svipuhögg fyrir sama dónaskap.
(Heimild: Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, bls. 233).

Dómar og störf alþingis um aldamótin 1700 sýna að hér er allt við hið sama í þeim efnum frá því á miðöldum - sjá hér að neðan: Gunnar Karlsson: Inngangur að miðöldum, 67: ,,Á miðöldum skiptist samfélagið í þrjár stéttir: klerka, aðal og almúga ...meðlimir þeirra höfðu ekki sama rétt gagnvart lögum. Það var gróf skerðing á mannréttindum að koma fram við klerk eða aðalsmann eins og bónda. Stundum var almúganum raunar skipt í tvo flokka, bændur og borgara. Öll er þessi skipting miðuð við karla, en konur hafa ...talist til sömu stéttar og eiginmenn þeirra og/eða feður".

Hér skal haft í huga hve veikt konungsvaldið var, og einkum til 1661 í Danmörk en hér styrkist réttarfarið fyrst eftir dauða H. Bjelke, 1683 eða öllu heldur eftir 1688 með refsiramma norsku laga og amtmanni búsettum á Íslandi og var þó allt í skötulíki þar til P. Raben verður stiftamtmaður 1720 og fjara tekur undan Oddi Sigurðssyni.

Frá Klúku í Arnarfirði er kominn heimsþekktur vísindamaður, Árni Friðriksson, fiskifræðingur.

Í minningum Agnars Kofoed-Hansen, ,,Lögreglustjóri á stríðsstímum", kemur fram að breska herlögreglan var vel samstíga þeirri reykvísku í viðureign við brotlega hermenn þar til óróaseggurinn hafði fleiri strípur á erminni en herlögreglumaðurinn. Þurfti þá að senda eftir öðrum herlögreglumanni sem hefði fleiri rendur.
Svona vandi kom hins vegar aldrei upp hjá bandaríska hernum.

Björn Þórðarson, Landsyfirdómurinn 1801-1919, bls. 109:
1821 túlkar Bjarni Thorarensen yfirdómari Ordinantsíu Friðriks II. 1587 svo, að dauðarefsing við jómfrúkrenkingu eigi við heldri konur og leggur til 2x27 vandarhögg og 34 rd. sekt. fyrir nauðgun.
Þarna er fullt samræmi við Njálu: Kolur og Svartur, 12 aurar silfurs, Brynjólfur og Atli 20 aurar silfurs, Þórður og Sigmundur 40 aurar silfurs.

Guðmundur Daníelson, Á bökkum Bolafljóts, bls.140: ,,Sá sem nóg hefur umleikis og eykur þó stöðugt efni sín, hann hefur sig upp yfir það sem vesalingarnir kalla rétt og rangt. Þannig hafði það alltaf gengið í mannfélaginu og þannig mundi það ganga framvegis".

Stéttaskiptingu að hætti ásatrúar skýrir Rígsþula í Eddukvæðum.

Vefurharpahreins.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1698

  • Vígslu hlaut Jón Vídalín
← 1698Vígslu hlaut Jón Vídalín1699 →Hvað höfðingjarnir hafast að