Bækluðu greyi að þrifnaði þekkt
Lag Sá frjáls við lögmál
Bækluðu greyi að þrifnaði þekktskal þjónað og bætt í gómien heilbrigðum flakkara sex aura sektsamkvæmt letingjadómi.
Heimildir og samhengi
Letingjadómur.
Lýður Björnsson: Frá samfélagsmyndun til sjálfstæðisbaráttu bls. 143: ,,Fólki sem engan átti framfærsluhreppinn var heimil för um land allt. Fleiri völdu þennan kost en löggjafinn heimilaði, einkum í harðindaárum. Reynt var að stemma stigu við flakki með dómum og refsingum. Með svonefndum letingjadómi frá 1586 voru heilbrigðir flakkarar dæmdir i 6 aura sekt og bændum jafnframt bannað að hýsa þá og klæða ef þeir létu ekki skipast. Gera má ráð fyrir að húðlát hafi átt að koma fyrir ef gjald þraut, slík var venja.
Dómur þessi stóð lengi við makt enda hélst flakkið við allt fram á 20. öld".
Eyrir = 6 álnir; 120 álnir kýrverð.
Dýrastaðadóm, er lengi var haldinn fyrir lög, kvað upp lm. Þórður Guðmundsson um þann letingja, Jón Torfason, og aðra hans maka sem ósjúkir og heilbrigðir væri og ekki fengist til vinnu heldur vildu á húsgang fara.
Þessi texti er skv. Alþingisbók 1586, bls. 84.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurbokin.is (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)