Í Vestmannaeyjum skal einn skans
Lag Hættu að gráta, hringaná
Í Vestmannaeyjum skal einn skansaf skyndingu upp færaað Englendingar engan sjanseigi sig að hræra.
Heimildir og samhengi
Eiríkur af Pommern, þá kóngur Kalmarsambandsins, sló eign krúnunnar á Vestmannaeyjar 1420. Var það gert í þeirri von að Englendingar virtu þá frekar eigur og rétt Eyjamanna. 1280, þegar Vestmannaeyjar voru eign Skálholtskirkju, gaf Staða-Árni Þorláksson Munklífisklaustrinu í Björgvin eyjarnar. E.t.v. var það vegna tíðra dvala íslenskra preláta þar í klaustrinu?
Áður en Eiríkur kóngur greip til þessa úrræðis höfðu enskir gert sig heimakomna og reist vígi, skans, á Heimaey, en fyrstu heimildir geta þeirra við landið 1412.
Þrátt fyrir yfirlýst eignarhald kóngs 1420, átök við sendiboða Eiríks, 1425, eignaupptöku eftir bardaga 1532 og aftur1558 og endurbyggðan skans nú, 1586, voru Englendingar tíðir og ekki vel séðir gestir í Vestmannaeyjum. Meðal annars gerði John Gentelman og fylgi hans usla þar 1614.
Eftir ,,Tyrkjaránið", 1627, var fyrirskipuð varðstaða á skansinum. Í Íslenskum æviskrám segir að Jón Ólafsson, Indíafari (1593-1679), hafi verið virkisvörður og kastalamaður í Vestmannaeyjum veturinn 1639 til 1640, en hann var fyrrum fallbyssuskytta í sjóher Dana. Sjá 1679.
Enn fékk skansinn hlutverk 1941. Þá kom breski herinn þar upp varðstöð hvar 6 til 7 hermenn stóðu vörð allan sólarhringinn og stjórnuðu umferð um höfnina.
Tilvísun: Guðmundur Kristinsson, Styrjaldarárin á Suðurlandi, bls. 274.
Helgi Þorláksson segir í Sögu Íslands Vll, að ógerlegt hafi verið að verjast erlendum ránsmönnum - sbr. ránið í Bæ, Rs. 1579 - með vopnum og virkjum vegna strjálbýlis og mannfæðar - nema helst á stöðum eins og Vestmannaeyjum og Bessastöðum (1668) og því hafi verið send herskip hingað til eftirlits.
Á bls. 153 segir Helgi: ,,...fóru Danir að ganga eftir því við Englendinga, að þeir öfluðu fiskveiðileyfa og bönnuðu þeim jafnframt að geyma báta sína í Heimaey og hafa þar búðir. Konungur lét reisa virki á eynni 1586 og þaðan skyldi skotið á alla þá sem leituðu hafnar án leyfis".
Myndbreathewithus.com (opnast í nýjum flipa)
Skansinn fyrir gos:
Vefurhi-in.facebook.com (opnast í nýjum flipa)