Ódeigur tekur Árni slag
Lag Dvel ég í draumahöll
Ódeigur tekur Árni slagaldrei hendur fallastvið mammon bindur bandalagbuddan þyngist, hallastmægjast við hann fáir fáfylgi ekki sýslalævís dregur lengsta strálunkinn Árni Gísla.
Heimildir og samhengi
Lést barnlaus Páll Vigfússon á Hlíðarenda, lm. SA 1556-1569 bróðir Önnu á Stóru-Borg. Páll var mágur Sæmundar ríka í Ási, Holtum, Eiríkssonar, bróður Jóns staðarhaldara í Vatnsfirði (1569), en kona Sæmundar Guðríður, var dóttir Vigfúsar lm. Erlendssonar og þau tengdaforeldrar sm. Árna Gíslasonar (d. 1587), er flyst að Hlíðarenda eftir Pál og sóttist eftir arfi eftir Önnu 1568.
Árni hafði að undanförnu, m.a. með fölsuðum eignarhaldsbréfum, sölsað undir sig hverja sýsluna af annarri: Ísafjarðar-, Húnavatns- með Þingeyraklaustri, Skaftafellssýslu með klausturumboði, og nú Rangárþing og hugðu menn misjafnt til nágrennis við hann þar.
Sagnaritarar, fá honum einkunnirnar: ,,harðdrægur, óbilgjarn, harðlyndur, ágengur, gjörræðismaður, fjáraflamaður mikill, gerði sér allt að féþúfu enda mikilmenni og vel gefinn”.
Allir þrír synir Árna urðu sýslumenn, tvær dætur áttu sýslumann, þriðja lögmann, fjórða biskup, fimmta átti prófast og officialis sem var biskupssonur, og sjötta átti lögmannsson sem varð alþingisskrifari.
Árni var 4. í karlegg frá Finnboga gamla í Ási, Kelduhverfi., d. um 1442. Móðir hans var Ingibjörg Grímsdóttir sm., Pálssonar á Möðruvöllum. Sm. Grímur d. 1526.
Saga Íslands VI, 130: ,,Höfðingjarnir fóru með sýslur og umboð í krafti auðs ...þannig að mikill auður safnaðist innan einstakra ætta. Sumum tókst að þröngva undir sig einstökum jörðum í upplausn þeirri sem fylgdi í kjölfar siðbreytingar ...aðrir stofnuðu til hagfelldra mægða og steyptu saman miklum jarðeignum þannig".
Axel Kristinsson, Hnignun, 174: ,,Öldum saman hafði lítill hópur auðmanna einokað flest embætti landsins. Fólk úr þessum forréttindahópi mægðist ákaft innbyrðis sem varð til að þjappa saman stórum jarðagóssum”. (1562, 1568, 1569, 1572).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Tilvísanir og heimildir:
Saga Íslendinga IV, 203; Saga Íslands VI, 94;
Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, 467;
Íslendingabók.is
Ísl. æviskrár; Íslandssagan í máli og myndum, 118;
Inga Huld Hákonardóttir: Fjarri hlýju hjónasængur, bls. 114.