Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1571
1571
1571

Guðbrandi höndum taka tveim

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

GGuðbrandi höndum taka tveimtreysta erkiklerkbiskupsvígður heldur heimað Hólum með sigurverk.

Brandur griðku sína sarðsú fékk lengi að púlabiskupsmóðir barnið varðog barn það sonur Skúla.​

Og ekkert biskup að því fannen aðra dæma lét í bann,,það sem helst hann varast vannvarð þó að koma yfir hann".

Glúmur Gylfason · 1571

Heimildir og samhengi

Guðbrandur Þorláksson (~1542-1627) Hólabiskup til dd. flutti með sér sigurverk úr vígsluferðinni, þ.e., stundaskífu með einum vísi sem sýndi stundirnar 12 eða 24. Úr verður til úr (h)ora, þ.e. stund, sem eru 24 í sólarhring. Þegar fram komu sigurverk með hljóðgjafa þá var talað um klukku. Klukkur, t.d. kirkjuklukkur sem hringt var t.d. með handafli þekktust löngu áður en skífuúr komu til sögu. Fyrir 1897 var úr, þ.e. skífa í turni Dómkirkjunnar, en það ár kom úr sem sló og eftir það var talað um Dómkirkjuklukkuna.

Að líkindum var Guðbrandur fyrsti eigandi úrverks hér á landi og þá 300 árum á undan sinni samtíð með því að Kristleifur Þorsteinsson segir í ,,Úr byggðum Borgarfjarðar" I, 76, að ekki væru klukkur á bóndabæjum um Borgarfjörð fyrr en eftir 1850.

Skv. slóðinni Vefuralmanak.hi.is (opnast í nýjum flipa)
hefur ,,klukka" Guðbrands ekki haft mínútuvísi. Þar segir að mínútuvísar verði ekki algengir fyrr en eftir 1656, þegar hollenskar pendúlklukkur koma til sögunnar. Þar kemur fram vélræn klukka sem var nákvæmari en hin fornu vatnsúr.

Á neðanskráðri slóð er rakið það sem vitað er um sögu klukkunnar og úrsins.
Þar sést m.a. að Borgundarhólmsklukkur koma fyrst við sögu um 1750.
Fyrirmynd þeirra, klukkukassinn, er þó eldri, og kom frá Hollandi með því að hollenskt skip með slíka klukku innanborðs, strandaði við Borgundarhólm. Gripu þá ,,Hólmverjar" hugmyndina og gerðu að sinni.

Í ,,Vinir og kunningjar" heldur vinur Þráins Bertelssonar því fram að við, Íslendingar, höfum verið síðastir þjóða til að finna upp hjólið.

Kerra með tveimur hjólum er tvívegis nefnd í ritheimild frá Bessastöðum, 1595 og 1606, þ.e. frá tíð Guðbrands biskups.. (Guðmundur Ólafsson Bessastaðarannsókn 1987).

Þetta á fæddist á Hólum Steinunn Guðbrandsdóttir, þá rektors þar, síðar biskups og Guðrúnar Gísladóttur vinnukonu á Hólum. Var það Steinunn Guðbrandsdóttir (1571—1649), sem giftist Skúla Einarssyni bónda á Eiríksstöðum í Svartárdal og í Bólstaðarhlíð. Eitt barna þeirra var Þorlákur Skúlason biskup, sem varð eftirmaður afa síns á Hólum.

Vefurvidenskab.dk (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1570Ódeigur tekur Árni slag1572 →Já frá Dóru og Jón að prenta