Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1569
1569
1569

Tjaldaði ei til einnar nætur

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

TTjaldaði ei til einnar næturætt á Reykholtsstaðfrjósöm varð og festi ræturfærði sögu á blað.

Glúmur Gylfason · 1569

Heimildir og samhengi

Veitt Reykholt Jóni yngra Einarssyni Sigvaldasonar langalífs Gunnarssonar. Bróðir Jóns var Gissur biskup, en afkomendur: Böðvar Reykholtsprestur eftir Jón föður sinn ~1590 til dd. 1626, þá Jón sonur hans, frægur söngvari, pr. Rkh. 1626 til dd. 1657, þá enn pr. í Reykholti sonur söngprestsins: Halldór eldri til dd. 1704.
Halldór sá, og Hólmfríður Hannesdóttir, prófastamóðir, voru foreldrar þriggja prófasta, þar á meðal Hannesar, prófasts í Rkh. til dd. 1731, og Jóns prófasts, officialis, fræðimanns og annálsritara í Hítardal, föður Finns, sem sem prestur var í Reykholti frá 1732 þar til biskup varð í Skálholti 1754. Var þá lokið 185 ára Reykholtssetu þessarar ættar - sjá þó Eirík Vigfússon hér á eftir.
Kirkjusögu íslenska ritaði Finnur á latínu, sem út var gefin í mörgum bindum í Kaupmannahöfn á árunum 1772-1778 og hlaut doktorstitil fyrir fyrstur Íslendinga, sjá 1775 og 1664. Kona Finns biskups var Guðríður Gísladóttir, systir am. Magnúsar, sem áttu Bauka-Jón Hólabiskup að föðurafa
Heimildir, m.a. Íslenskar æviskrár og:

Ath! (Innsláttar)villa er / var) í Íslendingabók sem segir / sagði Jón yngra Einarsson hafa fengið Reykholt 1559 í stað 1569.

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa) er slóð á ritgerð Kristleifs Þorsteinssonar. Hér er vitnað til hennar frá bls. 18:
,,Yfir 200 ár sitja þar (í Reykholti) á stóli 5 prestar og prófastar sem eru í beinan karllegg einn fram af öðrum. Fyrstur þeirra er Jón Einarsson, bróðir Marteins biskups (rangt, rétt: Gissurar b.), annar Böðvar Jónsson, þriðji Jón Böðvarsson, fjórði Halldór Jónsson og fimmti Hannes Halldórsson. Að síðustu Finnur Jónsson, bróðursonur séra Hannesar. Finnur varð síðar (1754) biskup í Skálholti".

Bróðir Finns biskups var sr. Vigfús sem fékk Hítardal eftir prófast Jón sagnaritara föður sinn, þann sem kosinn var til biskups 1720 og 1721, en sinnti ekki. Sjá 1664.
Sonur sr. Vigfúsar, Eiríkur (1747-1808). Um hann segja Íslenskar æviskrár:
,,Fékk Reykholt 1783 og var það fyrir atfylgi þeirra feðga, Finns og Hannesar biskupa, er höfðu vilyrði fyrir því að Reykholt héldist í ættinni ... sóktu þó í móti Páll konrektor Jakobsson og 3 háskólaguðfræðingar. Varð prófastur 1786 til þess er hann tók Stafholt 1806, líklega mest vegna fátæktar því að hann bjóst þá við að þurfa litlu álagi að svara á Reykholt; hélt hann Stafholt til dauðadags (rúmlega 1 ár), og hrökk búið ekki fyrir skuldum. ... Búmaður var hann enginn og níddi mjög niður staðinn í Reykholti ... af sumum talinn hégómlegur og daufur til gáfna og prestsverka enda hafinn upp við styrk frænda sinna".

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Vefursnorrastofa.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurwest.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1569

  • Ef seggur vill á sjóinn giska
  • Biskup eftir beljum gekk
  • Árna Gísla aldrei brá
← 1569Biskup eftir beljum gekk1569 →Árna Gísla aldrei brá