Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1569
1569
1569

Biskup eftir beljum gekk

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

BBiskup eftir beljum gekkog blésu þungt af mæðer þau komu að Kvíabekkúr kílómeters hæð!

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1569

Heimildir og samhengi

+ Ólafur Hólabiskup Hjaltason, *~1500.
Eftirfarandi kann séra Ágúst Sigurðsson frá honum segja í ritinu Forn frægðarsetur, Kvíabekkur, bls. 256:
,,Ólafur biskup (Hjaltason) kemur aftur að Kvíabekk. Á hann þá raunar það einkaerindi að reka að koma 3mur kúm fyrir á Kvíabekk. Hafði hann náð þeim í sakeyri með Brattavöllum á Árskógsströnd, en annað hvort hefur hann ekki treystst að koma þeim yfir Heljardalsheiði og vestur til Hóla eða ekki þótzt hafa þann arð af þeim þar sem hann vildi. Voru þær því reknar um Grímubrekkur, þar sem gatan liggur í meir en 1000 m hæð, og niður Reykjaheiði og allt til Kvíabekkjar. Þar er kúnum lýst náið svo að ekki fari milli mála, mörkum, lit og öðru svo ...að þetta vafstur biskups með kýrnar hefur nokkurt sögulegt gildi”.

Rekstur þessi mætti hafa verið á kaþólskum árum Ólafs þegar hann var í þjónustu Jóns Arasonar eða fyrst á ferli hans sem lúthersks biskups og þá áður en kóngur náði að klófesta sakeyri fyrir siðferðisbrot.

Á Kvíabekk var elliheimili fyrir presta Hólabiskupsdæmis frá árinu 1327.

Sbr: Einar Laxness: Íslands saga A-Ö um sakeyri: ,,Upp úr siðaskiptum rann allur sakeyrir til konungs og umboðsmanna enda missti kirkjan dómsvald það sem hún hafði áður haft”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1569

  • Ef seggur vill á sjóinn giska
  • Tjaldaði ei til einnar nætur
  • Árna Gísla aldrei brá
← 1569Ef seggur vill á sjóinn giska1569 →Tjaldaði ei til einnar nætur