Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1871
1871
1871

Nakin erum eins að sjá

Hljóðbrot0:00

Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915

NNakin erum eins að sjáþótt annað gildi:á fötum mátti þekkja þásem þéra skyldi

Glúmur Gylfason · 1871

Heimildir og samhengi

Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 355:
,,Á 19. öldinni þúuðust allir alþýðumenn ...voru það íslensku vaðmálsfötin sem gáfu til kynna hverrar stéttar maðurinn var. Alþýðumenn sáust þá varla öðruvísi en vaðmálsklæddir.
Fyrst eftir að menn fóru að brjóta þá venju gátu umrenningar í sumum tilfellum látið þéra sig og virða ef þeir komu í óþekktar sveitir í klæðisfötum”.

Fylgir saga af Vilhjálmi Hylter, vatnsburðarkarli og drykkjuræfli. Sá kom klæðisklæddur að Húsafelli til foreldra Kristleifs með háan pípuhatt og hornspangargleraugu og þéraði alla og laug frá hví hann væri hestlaus í svipinn. Faðir Kristleifs gerðist mótleikari og tók umrenningnum sem höfðingja.
Vilhj. Hylter f. 1813, kona Steinunn Jónsdóttir frá Eyrarbakka f. 1813.

Halldór Laxness (1902-1998) lýsir sjálfum sér leika 17 ára líkan leik við ritstjóra Berlingske Tidene, upp á klæddur með gervigleraugu, og fá þannig birta og borgaða smásögu 19. október 1919 á forsíðu stórblaðsins.

Fyrir svöngum og illa klæddum Gunnari Gunnarssyni (1889 - 1975) gekk það þannig (1912?) í Fjallkirkjunni, III, bls. 286: ,,Hóf síðan af nýju rápið á milli ritstjórnanna. Hvarvetna var mér jafnilla tekið, móðum og másandi. Hendingarnar frá um nóttina og ofurlítið morgunljóð ...hafði ég hripað með blýanti á pappírssnepla, sem ég fann í vasa mínum. Þau gengu ekki í augun á neinum; á einum stað varð ég að hirða snifsin aftur ósnert og ólesin af skrifborðinu, þar sem ég hafði lagt þau. Á öðrum stað voru þau rétt mér aftur af augljósum viðbjóði milli tveggja fingurgóma.. Þá gafst ég upp ...reikaði um götur (Kaupmannahafnar) ráðafár..."
Næsta dag gekk vinur Ugga (GG) í ábyrgð hjá klæðskera fyrir grænum jakkafötum með uppslögum á ermum ,,sem opnuðu hjörtu og hurðir", veitingaþjónn sem fá skyldi þjórfé síðar bar fram máltíð fyrir tvo. Fyrsti ritstjórinn sem boðið var kvæði galt strax 16 krónur, annar ritstjórinn tryggði sér smásögu og galt ritlaunin fyrirfram. (Fjallkirkjan III, 290-1).

Í ævisögu sinni, Kalt er við kórbak, segir Guðmundur J. Einarsson frá Brjánslæk: ,,Einar Magnússon ...vandist ungur verslunarstörfum hjá Bachmann kaupmanni, og sögðu gárungar, að Magnúsi karli, föður hans, hefði fundist svo mjög til um upphefð sonar síns, að hann hefði þérað hann".

Gísli Jónsson, Frá foreldrum mínum, bls. 136: ,,Það var ekki fyrr en dyr skólanna voru opnaðar almenningi að menningarbragurinn breyttist og menn hættu að bera utan á sér hvar í stétt þeir væru."

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1871

  • Þegið hefðum betri boð
← 1871Þegið hefðum betri boð1872 →Vistarskyldu frá nú flýjum