Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1871
1871
1871

Þegið hefðum betri boð

Hljóðbrot0:00

Lag Máninn hátt á himni skín

ÞÞegið hefðum betri boðbúið landi tjónmörgum þykir miður -um mánann yrkir Jón:,,Þessi stjórn er með stautstöðulög og tuð”Brandes talinn geta lítiðgott sagt um Guð.

Glúmur Gylfason · 1871

Heimildir og samhengi

Stöðulögin: Fjárhagsskilnaður gerður milli Íslands og Danmerkur og stofnaður varasjóður Íslands, sem lánaði ~ 2 milljónir kr. til atvinnurekstrar til aldamóta.
Lögin einhliða sett af Ríkisþinginu og ákvörðuðu stöðu Íslands í ríki Danakonungs eftir að hann afsalaði sér einveldi 1848 og giltu til 1874, er Alþingi var fengið fjárveitingarvaldið sem þrjú síðustu þing höfðu áður hafnað - með litlum atkvæðamun þó.

Torfi K. Stefánsson Hjaltalín ritar í Eldur á Möðruvöllum, 530: ,,stöðulögin gáfu mun minna í hlut en boðið var 1867. Þá var stjórnarskráin 1874 í sumum atriðum lakari en það sem boðið var 7 árum áður”.

Gísli Jónsson í Sögu 1974: ..Í stöðulögunum var í mörgu gengið til móts við óskir alþingis um íslensk sérmál, t.d. póstmál, (sbr. ísl. skildingafrímerki) svo og fiskveiðar og í stjórnarskránni sem alþingi þáði með þökkum 1874 birtist inntak þeirra. Því er nær að ætla að þeir sem hæst létu hafi aldrei lesið lögin en þingmenn með hugann svo fastan við ríkisráðsákvæðið að þeim kom ekki til hugar að nota löggjafarvald sitt til að stækka landhelgina fyrr en 1950, en samningur Dana við UK um 3ja mílna landhelgi frá 1901 var uppsegjanlegur með 2ja ára fyrirvara".

Í Sögu LIX-1, 2021, bls. 227 fjallar Helgi Þorláksson um stöðu Íslands í danska ríkinu og segir m.a: ,,Með stöðulögunum naut Ísland sérstakra landsréttinda og fékk löggjöf með konungi í sérstökum málum".

Georg Brandes (1842-1927) byrjar fyrirlestra í Kh. 3. nóvember ,,Um meginstrauma í bókmenntum 19. aldar", sem út komu í 6 bindum til 1890. Þar boðar hann nýjan sið í trú og siðfræði: Í frelsi færu framfarir sigurför til þroska mannsins . Áhrif Brandesar fjöruðu út á 9. áratugnum, sagðist um aldamótin aðeins eiga vinum að fagna meðal íslenskra stúdenta. Þar átti hann við Verðandimennina: Hannes Hafstein (1899), Gest Pálsson (1852-1891) og Einar Kvaran (1859-1938).
Ástæðu rekur Tómas Guðmundsson, skáld, í formála bókar E. Kvaran, ,,Mannlýsingar" bls. XV: ,,Skoðanir hans (GB) reyndust haldlausar ...hann hafði ekki sjálfur nægan samhug með mönnum ...var hann í raun einstaklingshyggjumaður sem hneigðist æ meir til skýlausrar hetjudýrkunar. ...Á efri árum gerðist hann til að tala fyrirlitlega um lýðræði og játaði ...að hann hefði engan áhuga fyrir skoðunum annarra".

Georg Brandes þýddi merkisrit John Stuart Mill, The Subjection of Women, á dönsku árið 1869 undir titlinum Kvindernes Underkuelse. Bókin fjallar um kúgun kvenna og jafnrétti, og þýðing Brandes var mikilvæg fyrir kvenréttindabaráttu á Norðurlöndum. Sjá Þóru Melsted 1874.

Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar, 155: ,,Upp úr 1870 hófst um alla evrópu barátta gegn kirkjunni undir ýmsum formerkjum svo sem vísindahyggju, Darwinisma og gagnrýnna athugana á Biblíunni ... hrifust margir af stefnu bræðranna Brandes, en þeir boðuðu ... jafnvel trúleysi".

Við álfadansleik skólapilta á Tjörninni í Rvk. 31.12. 1871 var frumflutt kvæðið Máninn hátt á himni skín eftir Jón ÓlafssonWikipedia (opnast í nýjum flipa) (1850-1916), ævintýra- konungkjörinn þingmann, skáld og ritstjóra. Sjá 1870.

Tilvísun: Sverrir Kristjánsson, Minnisverðir menn, bls. 11.

Stefán Einarsson segir, Skáldaþing, 232, að Nýársnóttina eftir Indriða Einarsson hafi skólapiltar Latínuskólans leikið fyrst 27. desember 1871 og að álfadansinn í henni hafi hrundið af stað þeim sið að hafa álfadans og brennur á þrettándanum. Fyrsti álfadans á þrettánda hafi verið á Tjörninni í Reykjavík 6. janúar 1972 og þar hafi fyrst verið sungið kvæði Jóns Ólafssonar, ,,Máninn hátt á himni skín".

Gils Guðmundsson: Ævintýramaður – Jón Ólafsson ritstjóri. Vaka-Helgafell 1987.

Vefurlemurinn.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1871

  • Nakin erum eins að sjá
← 1870Í verslun Þorleifs vínið var1871 →Nakin erum eins að sjá